Fótbolti

Rakar inn seðlum eftir að hafa fært sig úr MLS yfir í NFL

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Brandon Aubrey spilaði frábærlega í sínum fyrsta NFL-leik.
Brandon Aubrey spilaði frábærlega í sínum fyrsta NFL-leik. Richard Rodriguez/Getty Images

Brandon Aubrey lagði hart að sér til að þess að verða atvinnumaður í fótbolta. Hann var valinn í nýliðavali MLS-deildarinnar í Bandaríkjunum áður en hann ákvað að breyta til. Hann skipti yfir í NFL þar sem spilaður er amerískur fótbolti og er í dag leikmaður Dallas Cowboys.

Aubrey fór mikinn í leik Cowboys gegn New York Jets sem Kúrekarnir frá Dallas unnu 40-0. Aubrey gerði sér lítið fyrir og skoraði 10 stig í leiknum. Það er afrek út af fyrir sig en saga leikmannsins er það sem hefur vakið athygli.

Alla sína barnæsku ætlaði hann sér að verða atvinnumaður í fótbolta, ekki amerískum fótbolta heldur eins og við þekkjum íþróttina hér á landi. Hann komst inn í Notre Dame-háskólann og var á endanum valinn af Torono FC í nýliðavali MLS-deildarinnar árið 2017.

Honum tókst ekki að brjóta sér leið inn í aðallið Toronto og reyndi fyrir sér hjá Toronto FC II sem spilar í USL Championship-deildinni. Þaðan fór hann til Bethlehem Steel sem er hálfgert B-lið Philadelphia Union.

Það var svo þegar hann sat heima að horfa á leik í NFL-deildinni sem eiginkona hans sagði „þú gætir gert þetta“ eftir að hafa séð sparkara kom inn af bekknum og sparka boltanum milli marksúlnanna.

Stuttu síðar var Aubrey búinn að ráða einkaþjálfara til að aðstoða sig við æfingar og svo æfði hann stíft á meðan allt var lokað og læst sökum kórónuveirunnar. Það var svo árið 2022 sem Aubrey samdi við Birmingham Stallions í USFL-deildinni.

Hann varð tvívegis UFSL-meistari með Stallions áður en hann samdi við Dallas á þessu ári. Skrifaði hann undir þriggja ára samning upp á tæpar 2,7 milljónir Bandaríkjadala eða um 363 milljónir íslenskra króna. Ef marka má frammistöðu hans gegn Risunum frá New York þá er Aubrey hverrar krónu virði.


Tengdar fréttir

Kú­rekarnir skoruðu fjöru­tíu og sá launahæsti kældur

Dallas Cowboys vann ótrúlegan 40-0 sigur á New York Giants í fyrstu viku NFL-deildarinnar. Joe Burrow var langt frá sínu besta en hann skrifaði á dögunum undir risasamning við Cincinnati Bengals sem gerir hann að launahæsta leikmanni deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×