Viðskipti innlent

Perlan fer á sölu

Árni Sæberg skrifar
Perlan er föl.
Perlan er föl. Vísir/Vilhelm

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að heimila fjármála- og áhættustýringarsviði, eignaskrifstofu, að hefja söluferli á Perlunni auk tveggja vatnstanka í Öskjuhlíð. Fasteignamat eignanna er tæpir fjórir milljarðar.

Í fréttatilkynningu um ákvörðunina segir að Hitaveita Reykjavíkur hafi byggt Perluna og hún opnuð árið 1991. Reykjavíkurborg hafi keypt Perluna árið 2013 og síðar tvo vatnstanka af Orkuveitu Reykjavíkur. 

Á þeim tíma sem kaupin fóru fram hafi rekstur hússins ekki staðið undir sér og tekjur rétt nægjanlegar fyrir fasteignagjöldum og lóðarleigu.

Sneri rekstrinum við

Á þeim tíu árum sem liðin eru frá kaupum borgarinnar á Perlunni hafi orðið algjör viðsnúningur á rekstrinum og tekjur standi vel undir kostnaði. Húsnæðið hafi verið auglýst til leigu og núverandi leigutaki sé Perla norðursins ehf., sem hafi þróað hana sem áhugaverðan áfangastað í Reykjavík. 

Perlan hafi síðustu ár tekið miklum breytingum og hýsi núna sýningar auk veitingastaða. Perlan sé einn af aðaláfangastöðum ferðamanna í borginni, og frá útsýnispallinum sé magnað útsýni yfir höfuðborgarsvæðið og fjallahringinn. 

Í Perlunni sé fjöldi sýninga, þar á meðal íshellir, stjörnuver og gagnvirkar sýningar um íslenska náttúru og menningu. 

Þessar eignir bjóði upp á aukin tækifæri og möguleika til áframhaldandi þróunar og ekki sjálfgefið að Reykjavíkurborg sé besti aðilinn til að þróa þessar eignir áfram. Stærð hússins og tanka sé um 5.800 fermetrar og fasteignamat 3.942.440.000 krónur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×