Sport

Þjálfarinn þreyttur á Russell Wilson: „Hættu að kyssa smábörn“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Russell Wilson er einn þekktasti íþróttamaður Bandaríkjanna.
Russell Wilson er einn þekktasti íþróttamaður Bandaríkjanna. getty/RJ Sangosti

Russell Wilson er einn mest áberandi leikmaður NFL-deildarinnar, þjálfara hans til mikils ama.

Leikstjórnandinn, sem gekk í raðir Denver Broncos frá Seattle Seahawks fyrir síðasta tímabil, er tíður gestur í spjallþáttum í Bandaríkjunum og áberandi í auglýsingum ýmissa fyrirtækja, meðal annars Nike og Pepsi. Þess utan er hann giftur söngkonunni Ciöru.

Þjálfari hans hjá Broncos, Sean Payton, virðist þó vera búinn að fá nóg af allri athyglinni sem Wilson fær.

„Geturðu hætt að kyssa smábörn? Þú ert ekki að reyna að komast á þing,“ sagði Payton við Wilson.

Hann er launahæsti leikmaður í sögu Broncos og einn launahæsti leikmaður í NFL. Ekki hefur þó gengið sem skyldi inni á vellinum undanfarin ár. Í fyrra unnu Wilson og Broncos til að mynda aðeins fjóra leiki og voru með verstu sóknina í NFL.

Broncos mætir Las Vegas Raiders þegar keppni í NFL hefst á sunnudaginn.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×