Innlent

„Manneskjan sem þeir eiga að vera að stöðva er Kristján Loftsson“

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Eliza er enn með símann sinn en síminn var tekinn af Anahitu Babaei í Hval 9.
Eliza er enn með símann sinn en síminn var tekinn af Anahitu Babaei í Hval 9. Vísir/Vilhelm

„Við erum hér því að þrátt fyrir mótmæli út um allan heim og þrátt fyrir að meirihluti Íslendinga vilji binda enda á hvalveiðar ákvað Svandís að lyfta hvalveiðibanninu og leyfa Loftssyni að veiða yfir 200 hvali.

Þetta er gjörsamlega fáránleg ákvörðun,“ segir Eliza, annar mótmælendanna tveggja sem hafa hlekkjað sig fasta við hreiður Hvals 8 og Hvals 9 í Reykjavíkurhöfn.

Hún segir mótmæli engu hafa skilað og þetta séu örþrifaráð.

„Við höfum sagt það sem við viljum segja en það virðist ekki skipta neinu máli,“ segir hún.

Beina útsendingu frá höfninni má sjá í spilaranum hér að neðan:

Eliza segist vera hér á eigin vegum en að hún sé meðvituð um að aðrir aðgerðasinnar og baráttusamtök séu einnig stödd hér á landi til að freista þess að stöðva veiðarnar.

Sérveitin er mætt á staðinn.Vísir/Vilhelm

Spurð um aðgerðir lögreglu og slökkviliðs í morgun segir hún viðbragðsaðila ekki hafa náð til sín, þar sem hún sé á bátnum sem liggur fjær bryggjunni. Hins vegar hafi verið togað í hinn mótmælandann og síminn hennar og birgðir verið teknar.

Og áhafnarmeðlimir.Vísir/Vilhelm

„Við viljum ekki að neinn meiðist,“ ítrekar Eliza. „En ég held að manneskjan sem þeir eigi að vera að reyna að stöðva sé Kristján Loftsson. Þegar bátarnir hans eru farnir og hvalveiðunum hefur verið hætt munum við hætta að mótmæla,“ segir hún.

Fréttastofu hefur borist tilkynning frá lögreglunni þar sem segir að aðgerðir standi yfir við Reykjavíkurhöfn þar sem fólk hafi farið í óleyfi í tvo hvalbáta og sé enn. Ekki sé hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.

Elísabet Inga Sigurðardóttir fréttamaður Stöðvar 2 ræddi einnig við Elizu:



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×