Lífið

Septemberspá Siggu Kling er mætt

Sigga Kling skrifar
september

Stjörnuspá Siggu Kling fyrir september er lent á Vísi. Sigga Kling birtir stjörnuspá fyrir öll stjörnumerkin fyrsta föstudag hvers mánaðar.

Stjörnuspár Siggu Kling hafa notið gríðarlega vinsælda. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis, í formi texta og myndbands, en spár hennar fyrir september má sjá hér að neðan.

Sigga leggur áherslu á að fólk geri það besta úr því sem það les, nýti sér orkuna, klappi sér á bakið og elski lífið. Spárnar einkennast af gleði, krafti, orku og jákvæðni en það eru skilaboðin sem hún vill senda til samfélagsins.


Tengdar fréttir

Septemberspá Siggu Kling: Æfingin skapar meistarann

Elsku Hrúturinn minn. Þín magnaða pláneta mars, gefur þér allan þann kraft sem þú þarft til að vera duglegur á öllum sviðum. Oft köllum við plánetuna Mars rauðu plánetuna, og það er eldsorkan sem mun fylgja þér út haustið.

Septemberspá Siggu Kling: Gömlum viðhorfum þarftu að gleyma

Elsku nautið mitt. Stundum þarftu að gæta þín á því og vita að þú þarft ekki að fara á þeim hraða í lífinu sem aðrir ætla þér. Þú hefur þörf fyrir að slaka á og lifa með ró í hjarta. Ef að þú mættir ráða, þá ertu ekki hrifinn af því að flytja þig úr stað.

Septemberspá Siggu Kling: Þig langar mest að öllu að leggjast í hýði

Elsku tvíburinn minn. Þú ert ekkert að skilja í því að þér finnist allt vera svo innantómt og fúlt. Ef þú skoðar vel aftur í tímann, þá er eins og þú fáir pínulítið taugaáfall þegar sumrinu líkur. Því að þú ert barn sólarinnar og sumarsins. Þig langar mest að öllu að leggjast í hýði eins og skógarbjörninn.

Septemberspá Siggu Kling: Haltu aftur af hvatvísi þinni

Elsku ljónið mitt. Þú ert að mörgu leyti kominn á betri stað en þú varst fyrir mánuði. Þú veist hvernig þú getur unnið með sjálfan þig á þessum punkti og þú hefur meiri sjálfstraust og sjálfsstjórn en áður. Þú nærð að finna þessa uppljómun sem er í þér og það er líka í þér kraftur til að magna upp þessa uppljómun.

Septemberspá Siggu Kling: „Að hika er sama og tapa“

Elsku krabbinn minn. Þú ættir að taka allar þínar stóru ákvarðanir á fullu tungli. Þar sem að þú ert fæddur undir þeirri dásamlegu plánetu, þá skaltu vita það að ef það er stórstrengd hæð eða lægð yfir landinu þá fara þeir fítusar inn. Þess vegna er mikilvægt að fylgjast með öllu því sem móðir jörð er að segja við þig, því hún er að hjálpa þér í hverju einasta skrefi sem þú tekur.

Septemberspá Siggu Kling: Peningamálin rætast á síðustu stundu

Elsku meyjan mín. þú ert eitthvað svo hugsi, eins og þú sért að meta aðstæður og vita hvað næsta skref er. Þinn aðalhæfileiki er að geta haft skýr samskipti bæði í rituðu og töluðu máli.Það getur fokið aðeins í þér ef að aðrir eru ekki eins vitrir og þú og skilja ekki hvert þú ert að fara.

Septemberspá Siggu Kling: Í vorkunn færist ekkert nema niður á við

Elsku vogin mín. Þú ert eitthvað svo í skapi til að fela tilfinningar þínar og láta aðra halda að þú sért meiri töffari en þú í rauninni ert. Ef að það er eitthvað sem þú ætlar að vinna þér inn núna, samningar, vinátta eða ást, þá skaltu sleppa öllum leikritum og vita það að þegar að þú lætur í einlægnina þína skína, þá brotna allar varnir hjá þeim sem þú þarft að kljást við. 

Septemberspá Siggu Kling: Þú sérð oft ekki hversu sterkur þú ert

Elsku sporðdrekinn minn. Það er alltaf verið að benda þér á hvað þú eigir að gera og hvernig þú eigir að gera það. Þú sérð oft ekki hversu sterkur þú ert og einblínir þess vegna oftar á velgengni annarra og finnst þess vegna grasið grænna hjá nágrannanum en hjá þér.

Septemberspá Siggu Kling: Leyfðu þér að flæða og lífinu að gerast

Elsku vatnsberinn minn. Þessi tilvera sem þér er færð, er nákvæmlega þannig sem þú lítur á lífið. Ef að þú vorkennir þér, alveg sama hvaða stöðu þú hefur í lífinu, þá missirðu máttinn, sérð ekki hvað þér er raunverulega gefið og hvað þú raunverulega getur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×