Handbolti

Með há­leit mark­mið þrátt fyrir mun yngri hóp en á síðustu leik­tíð

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Patrekur Jóhannesson ræðir við sína menn á síðustu leiktíð.
Patrekur Jóhannesson ræðir við sína menn á síðustu leiktíð. Vísir/Diego

Það hafa orðið miklar breytingar á liði Stjörnunnar í Olís-deild karla í handbolta fyrir komandi tímabil. Stefnt er að því að byggja upp á ungum og efnilegum Stjörnumönnum.

Þetta staðfesti Patrekur Jóhannesson, þjálfari liðsins, í viðtali við handbolti.is nýverið. Þar fór hann yfir leikmannamál liðsins og sagði að hópur Garðbæinga væri 60-70 prósent uppaldir Stjörnuguttar.

„Meðalaldurinn er talsvert lægri, 22 til 23 ár í stað 28 ára í fyrra. Ég er sáttur við þetta og tel það vera eina vitið eins og málum er komið að horfa á þá leikmenn sem fyrir eru í félaginu í bland við nokkra leikmenn sem geta styrkt hópinn,“ sagði Patrekur en nú styttist í að handbolta tímabilið hér á landi fari af stað.

Handbolti.is fer einnig farið yfir hverjir eru komnir til Stjörnunnar og hverjir eru farnir. Báðir listar eru nokkuð langir.

Komnir

  • Benedikt Marinó Herdísarson, var á láni hjá Fjölni
  • Jón Ásgeir Eyjólfsson, var á láni hjá Fjölni
  • Egill Magnússon frá FH
  • Haukur Guðmundsson frá Aftureldingu
  • Ísak Logi Einarsson frá Val
  • Victor Máni Matthíasson frá StÍF í Færeyjum

Farnir/Hættir

  • Ari Sverrir Magnússon í HK
  • Leó Snær Pétursson í Aftureldingu
  • Brynjar Hólm Grétarsson í Þór
  • Arnar Freyr Arnarsson.
  • Arnór Freyr Stefánsson
  • Björgvin Þór Hólmgeirsson.
  • Gunnar Steinn Jónsson.
  • Jóhann Karl Reynisson.

Patrekur segir að Stjarnan hafi þurft að „skera niður og horfa meira inn á við sem mér finnst frábært.“ Hann tók þó fram að liðið ætli sér að vera áfram í fremstu röð og það sé í raun ekki slakara en liðið á síðustu leiktíð þó hópurinn í heild sé yngri.

„Maður fer í öll verkefni með alvöru markmið,“ bætir Patrekur við og segir sína drengi hafa æft duglega í sumar. Alls hafi liðið æft 40 sinnum frá 24. júlí síðastliðnu.

„Stundum tvisvar á dag og meðal annars æft samhliða kvennaliðinu sem er gott og treystir mjög félagslega þáttinn,“ sagði Patrekur að endingu en viðtalið í heild sinni má finna á vef handbolti.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×