Orri og fé­lagar leiða eftir fyrri leikinn í bar­áttunni um Meistara­deildar­sæti

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Orri Steinn Óskarsson og félagar eru í góðri stöðu fyrir seinni leikinn.
Orri Steinn Óskarsson og félagar eru í góðri stöðu fyrir seinni leikinn. Lars Ronbog / FrontZoneSport via Getty Images

Það lið sem hefur betur í rimmunni tryggir sér sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar og því er mikið undir.

Danska liðið tók forystuna strax á níundu mínútu þegar Bogdan Racovitan varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net eftir fyrirgjöf frá Mohamed Elyounoussi.

Heimamenn í Rakow héldu svo að þeir hefðu jafnað metin þegar Giannis Papanikolaou kom boltanum í netið á 39. mínútu, en markið hins vegar dæmt af vegna rangstöðu eftir skoðun myndbandsdómara.

Orri kom svo inn af varamannabekknum á 64. mínútu leiksins, en fleiri urðu mörkin ekki og niðurstaðan því mikilvægur 0-1 útisigur FCK. Kaupmannahafnarliðið fer því með forystu í seinni leik liðanna sem fram fer í Danmörku á miðvikudaginn eftir rúma viku.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira