Fótbolti

Neymar mætti til Sádi-Arabíu á einka­þotu sem tekur fleiri hundruð far­þega

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Neymar er mættur til Sádi-Arabíu.
Neymar er mættur til Sádi-Arabíu. Mohammed Saad/Getty Images

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar er mættur til Sádi-Arabíu þar sem hann hefur skrifað undir samning við Al Hilal þar í landi. Kom hann til landsins með Boeing 737 einkaþotu en slík flugvél tekur fleiri hundruð farþega í hefðbundnu flugi.

Hinn 31 árs gamli Neymar gekk í raðir Al Hilal á dögunum og er með stærstu kaupum deildarinnar í Sádi-Arabíu en fjárfestingasjóður landsins – sem á fjögur stærstu félögin þar í landi sem og Newcastle United í Englandi – hefur fest kaup á fjöldanum öllum af heimsþekktum leikmönnum í sumar.

Neymar kostaði drjúgan skilding sem og hann fær ýmis fríðindi fyrir það eitt að semja við Al Hilal.

Eitthvað er í að leikmaðurinn muni spila sinn fyrsta leik í deildinni þar sem hann er að glíma við meiðsli um þessar mundir. Hann er þó mættur til Sádi-Arabíu og kom með stæl ef svo má að orði komast.

Í myndbandi sem birt var á samfélagsmiðlum má sjá flugvélina sem kom leikmanninum og fylgdarliði hans til Sádi-Arabíu. Um einkaflugvél var að ræða þó svo að lítið bæjarfélag á Íslandi kæmist eflaust fyrir í vélinni. Myndbandið má sjá hér að neðan.

Al Hilal er með fjögur stig að loknum tveimur umferðum í Sádi-Arabíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×