Innlent

Fallegasta gatan í Árborg er Suðurengi á Selfossi

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Fallegasta gatan í Sveitarfélaginu Árborg 2023 er Suðurengi á Selfossi.
Fallegasta gatan í Sveitarfélaginu Árborg 2023 er Suðurengi á Selfossi. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Íbúar í Suðurengi á Selfossi þurfa ekki að skammast sín fyrir götuna sína því hún var um helgina valin fallegasta gatan í Sveitarfélaginu Árborg. Elsti og yngsti íbúi götunnar afhjúpuðu sérstakt skilti þess efnis.

Bæjarhátíðin Sumar á Selfossi fór fram um helgina þar sem fjölmargt skemmtilegt var í boði. Einn af hápunktunum alltaf er að velja fallegustu götuna í sveitarfélaginu en í ár var það gatan Suðurengi á Selfossi en þetta er í annað skipti á nokkrum árum, sem íbúar götunnar hljóta þessa viðurkenningu. Í götunni eru 36 hús. Íbúarnir komu saman á föstudaginn til að taka á móti viðurkenningunni en það kom í hlut elsta íbúa götunnar, Jóhannesar Guðmundssonar, 97 ára og þess yngsta, Axels Inga Svavarsson að afhjúpa skiltið.

Það kom í hlut elsta íbúa götunnar, Jóhannesar Guðmundssonar, 97 ára og þess yngsta, Axels Inga Svavarsson að afhjúpa skiltið góða en hér er Axel í fangi pabba síns.Magnús Hlynur Hreiðarsson

„Það er mjög mikið af fallegum vel hirtum görðum hérna, fallegar innkeyrslur og þetta gefur heildaryfirbragði götunnar, sem gerði það að verkum að hún endaði efst í stigakosningu nefndarinnar, svona heildaryfirbragð, sem er mjög snyrtilegt,” segir Bragi Bjarnason, formaður umhverfisnefndar Árborgar.

Þetta er ansi skemmtileg hefð hjá sveitarfélaginu?

„Já, þetta er ofboðslega skemmtilegt og þetta er eitt af þessu skemmtilega sem nefndin gerir á hverju ári en það er að fá að taka þátt í því að koma með tilnefningar og taka við tilnefningar frá íbúum og svo að velja og afhenda viðurkenningarnar.”

Á Sléttusöngnum í gærkvöldi voru nokkrar viðurkenningar afhentar í viðbót, t.d. var Tröllhólar valin skemmtilegasta gatan á Selfossi og garðurinn við Lyngheiði 17 fallegasti garðurinn og á Eyrarbakka var það bærinn Óseyri, sem fékk verðlaun svo einhver dæmi séu tekin.

Hluti af íbúum Suðurengis við skiltið góða, sem segir að gatan þeirra sé sú fallegasta í Árborg árið 2023.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Svo skemmtilega vildi til við athöfnina í Suðurengi að hjón í götunni, þau Fjóla Pálmarsdóttir og Hilmar Birgir Leifsson áttu 60 ára brúðkaupsafmæli.

„Það er bara alveg gasalega spennandi Magnús. Mér finnst eiginlega meira spennandi að það eru 40 ár, síðan ég flutti í Suðurengi og ég ætla ekki að fara næstu fjörutíu árin,” segir Fjóla og skellihlær. Hún segir götuna frábæra enda búi svo yndislegt fólk í henni.

Fjóla og Hilmar, sem áttu 60 ára brúðkaupsafmæli föstudaginn 11. ágúst.Magnús Hlynur Hreiðarsson


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×