Enski boltinn

Brady mætti á pöbbinn í Birmingham

Valur Páll Eiríksson skrifar
Brady heilsar upp á stuðningsmenn í stúkunni í dag.
Brady heilsar upp á stuðningsmenn í stúkunni í dag. Getty

NFL-stjarnan Tom Brady, fyrrum leikstjórnandi New England Patriots og Tampa Bay Buccaneers, var meðal áhorenda er Birmingham City hafði betur gegn Leeds United í ensku B-deildinni í fótbolta í dag. Hann heilsaði upp á stuðningsmenn félagsins á knæpu í aðdragandanum.

Brady keypti hlut í Birmingham félaginu fyrir nokkrum vikum og er í eigendahópi þess. Hann mætti á sinn fyrsta leik í dag þegar Birmingham vann 1-0 heimasigur á Leeds á St. Andrews.

Luke Jutkiewicz skoraði sigurmark Birmingham í uppbótartíma af vítapunktinum og er liðið með fjögur stig eftir tvær umferðir.

Margur stuðningsmaður liðsins rak aftur á móti upp stór augu í aðdraganda leiksins þegar Brady var skyndilega mættur á knæpu skammt frá vellinum. Hann tók þar púlsinn á stuðningsmönnum fyrir leik.

Ungir stuðningsmenn félagsins fengu áritun hjá NFL-stjörnunni.Getty
NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×