Fótbolti

Hólmbert kom inn á og skoraði tvö fyrir Holstein Kiel

Siggeir Ævarsson skrifar
Hólmbert Friðjónsson var hetja sinni manna í dag
Hólmbert Friðjónsson var hetja sinni manna í dag Vísir/Getty

Hólmbert Friðjónsson og félagar í Holstein Kiel eru komnir áfram í þýska bikarnum en Hólmbert var hetja sinna manna í dag og skoraði bæði mörk liðsins í 0-2 sigri.

Leikurinn í dag var leikur í fyrstu umferð þýska bikarsins þar sem Holstein sóttu Gütersloh heim. Fyrirfram þóttu gestirnir væntanlega töluvert sigurstranglegri en Gütersloh leika í 4. deildinni í Þýskalandi eftir að hafa komist upp úr þeirri 5. í fyrra.

En það er sjaldnast á vísan að róa í bikarleikjum og leikmenn Gütersloh gerðu sig líklega til að slá 2. deildarlið Holstein út. Þeir fengu víti á 42. mínútu en það fór forgörðum. Á 61. mínútu kom Hólmbert inn á og það tók hann aðeins um tíu mínútur að setja mark sitt á leikinn. 

Hólmbert bætti svo við öðru marki í uppbótartíma og Holstein því komið áfram í næstu umferð þýska bikarsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×