Bíó og sjónvarp

Frumsýning á Vísi: Bráðfyndin stikla úr Heimaleiknum

Boði Logason skrifar
Myndin verður frumsýnd 16. september í Bíó Paradís, sama dag og úrslitaleikur Mjólkurbikars karla fer fram.
Myndin verður frumsýnd 16. september í Bíó Paradís, sama dag og úrslitaleikur Mjólkurbikars karla fer fram. samsett

Ný íslensk bíómynd, Heimaleikurinn, verður frumsýnd í Bíó Paradís 16. september næstkomandi. Vísir frumsýnir bráðfyndna stiklu úr myndinni. 

Klippa: Heimaleikurinn - stikla

Myndin er gamansöm íþróttaheimildarmynd sem fjallar um tilraun Kára Viðarssonar til að klára misheppnað verkefni föður síns: Að safna í lið af misgóðum heimamönnum til að spila langþráðan vígsluleik á ónotuðum fótboltavelli sem hann lét byggja á Hellissandi fyrir 25 árum.

Kári tileinkar sér þjálfunarspeki föður síns sem trúði á það að allir sem vildu taka þátt fengju að spila, óháð getu, aldri og kyni. Liðið vex og UMF Reynir Hellissandi verður að samfélagsverkefni í þorpinu en hópurinn skartar meðal annars gömlum sjómönnum, óhörðnuðum unglingum, feðgum og þriggja barna móður, Freydísi Bjarnadóttur.

Myndin vann Einarinn, áhorfendaverðlaun Skjaldborgar 2023, og viðbrögðin við myndinni voru frábær, að sögn kunnugra hefur sjaldan eða aldrei verið jafn mikil stemning í Skjaldborgarbíó.

Leikstjórn er í höndum Smára Gunnarssonar og Loga Sigursveinssonar en þetta er fyrsta mynd þeirra í fullri lengd. Framleiðendur Heimaleiksins eru Stephanie Thorpe, Elfar Aðalsteins, Heather Millard og Freyja Kristinsdóttir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×