Fótbolti

Orri kom inn af bekknum í Meistara­deildar­jafn­tefli

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Orri Steinn Óskarsson kom inn af varamannabekknum í kvöld.
Orri Steinn Óskarsson kom inn af varamannabekknum í kvöld. Getty/Lars Ronbog

Orri Steinn Óskarsson lék síðustu tuttugu mínúturnar fyrir FCK er liðið gerði markalaust jafntefli gegn Sparta Prague í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Orri fékk ekki tækifæri í byrjunarliði dönsku meistaranna í kvöld þrátt fyrir að hafa skorað þrennu gegn lærisveinum pabba síns í Breiðablik á dögunum, en hann kom inn af varamannabekknum á 72. mínútu í kvöld.

Hann var eini Íslendingurinn í leikmannahópi FCK í kvöld, en Ísak Bergmann Jóhannesson var fjarri góðu gamni.

Hvorugu liðinu tókst að skora í leik kvöldsins og því er staðan en 0-0 í einvíginu, en seinni leikur liðanna fer fram í Prag að viku liðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×