Sport

Annie Mist áfram meðal fimm efstu

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Annie Mist eftir að sætið á heimsleikunum var tryggt
Annie Mist eftir að sætið á heimsleikunum var tryggt Vísir/Getty

Heimsleikarnir í Crossfit fara fram um helgina þar sem þrír íslenskir keppendur taka þátt.

Fyrri grein föstudagsins er lokið og stóðu íslensku keppendurnir; Annie Mist Þórisdóttir, Björgvin Karl Guðmundsson og Katrín Tanja Davíðsdóttir sig með ágætum.

Katrín Tanja varð reyndar neðarlega eða í 34.sæti en er í 14.sæti í heildarkeppninni á meðan Annie Mist hafnaði í níunda sæti en styrkti engu að síður stöðu sína í 4.sæti heildarkeppninnar.

Björgvin Karl varð sjötti og er í sjötta sæti í heildarkeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×