Erlent

Heimshöfin heitari en nokkru sinni fyrr

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Hitametin hafa fallið víða í sumar og nú er sjórinn heitari að meðaltali en nokkru sinni fyrr. 
Hitametin hafa fallið víða í sumar og nú er sjórinn heitari að meðaltali en nokkru sinni fyrr.  AP Photo/Rebecca Blackwell

Hiti sjávar hefur aldrei verið hærri en meðalhiti sjávar á allri jörðinni náði 20.9 stigum í vikunni sem er að líða.

Þetta segja vísindamenn frá Kópernikusi sem er stofnun Evrópusambandsins sem fylgist með loftslagsbreytingum. Það er langt fyrir ofan meðaltalið miðað við þennan árstíma, að því er segir í umfjöllun BBC. Fyrra metið var sett árið 2016 en sjávarhiti hefur farið hækkandi á jörðinni í þeim loftslagsbreytingum sem nú eru í gangi.

Höfin eru afar mikilvæg þegar kemur að því að jafna út öfgar í veðurfari og hitastigi á jörðinni enda draga þau í sig hita, framleiða um helming alls súrefnis og stjórna veðurfarinu. Eftir því sem sjór hitnar þá minnka möguleikarnir á því að sjórinn geti dregið í sig koldíoxíð. Það þýðir að meira magn gróðurhúsalofttegunda verður eftir í andrúmsloftinu.

Heitari sjór leiðir líka til þess að jöklarnir bráðna hraðar sem veldur aftur hækkun á yfirborði sjávar. Þá hefur breytt hitastig sjávar einnig áhrif á hegðun dýranna sem lifa í sjónum sem mörg hver hugsa sér til hreyfings þegar hitastigið breytist og leita þá í kaldari sjó.

Vísindamenn rannsaka nú ástæðu þess að sjórinn er að hitna en segja ljóst að loftslagsbreytingarnar hafi þar mikil áhrif.

Þegar síðasta met féll, árið 2016, var El Nino veðurfyrirbrigðið í gangi af fullum krafti. Nú er nýtt El Nino tímabil hafið, en er þó aðeins í byrjunarfasa. Því óttast menn að þetta nýja hitamet verði slegið áður en langt um líður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×