Fótbolti

Barðist við tvær mjög sterkar taugar: „Glaður að þetta sé frá“

Aron Guðmundsson skrifar
Feðgarnir saman eftir leik
Feðgarnir saman eftir leik Vísir/Getty

Tvær mjög sterkar taugar tókust á hjá Óskari Hrafni Þor­valds­syni, þjálfara Breiða­biks, sem horfði upp á son sinn Orra skora þrennu fyrir FC Kaup­manna­höfn í viður­eign liðanna í Meistara­deildinni í gær.

Segja má að Orri hafi gert endan­lega út um vonir föður síns og Breiða­bliks um sæti í næstu um­ferð Meistara­deildarinnar en þessi efni­legi knatt­spyrnu­maður fór á kostum í leik sem var hans fyrsti í byrjunar­liði FC Kaup­manna­hafnar í Meistara­deild Evrópu.

„Ég er bara þjálfari Breiða­bliks í leiknum og næ ekki að njóta þess að sonur minn sé að spila vel.“

„Fyrir það fyrsta myndi ég ekki óska mínum versta ó­vini þess að vera í þessari stöðu, að spila á móti barninu sínu. Mér fannst það alla­vegana mjög ó­þægi­legt. En úr því sem komið var þá held ég að ef ein­hver hefði átt að skora þrennu í leiknum, þá var það besta sem gat gerst að það yrði Orri.

Hann spilaði frá­bær­lega í þessum leik og sem faðir er ég mjög stoltur af honum en sem þjálfari Breiða­bliks hafði ég rosa­lega lítinn smekk fyrir því þegar að hann var að pakka mönnum saman þarna.“

Hat trick hero, Orri Óskarsson fór á kostum í liði FC KaupmannahafnarVísir/Getty

„Það var bara skrítið að upp­lifa þetta því í svona að­stæðum takast á tvær mjög sterkar taugar. Annars vegar er maður þarna með liðið sem maður hefur sett sál sína í, leik­menn sem að maður brennur fyrir og er til­búinn að vaða eld og brenni­stein fyrir og hefur gríðar­lega trú á. 

Og hins vegar er maður þarna að sjá son sinn, sem maður er búinn að ala upp og er manns eigið hold og blóð og ber gríðar­lega sterkar til­finningar til. Þetta er bara skrýtið og ég er glaður að þetta sé frá.

Eftir­á­hyggja er ég bara gríðar­lega stoltur af honum. Það er frá­bært fyrir hann að hafa náð þessu gegnum­broti og koma sér með þessum hætti á kortið. Nú þarf hann bara að halda augna­blikinu gangandi.“

Inntur eftir svörum við því hvernig tilfinningar börðust um innra með honum þegar að Orri skoraði fyrsta mark sitt í leiknum, undir lok fyrri hálfleiks og kom FC Kaupmannahöfn í stöðuna 4-1, hafði Óskar Hrafn þetta að segja: 

„Fyrsta til­finning var sú að maður fann fyrir svekk­elsi. Í því mómenti er leikurinn punkteraður og staðan orðin 4-1 í upp­bóta­tíma fyrri hálf­leiks. Svo er það ekkert fyrr en eftir leikinn sem maður nær að vinna úr því. Ég er bara þjálfari Breiða­bliks í leiknum og næ ekki að njóta þess að sonur minn sé að spila vel fyrr en bara að maður gerir þetta ein­hvern veginn upp eftir leik. Skrýtin til­finning.“

Hefði verið svo auðvelt að leggjast niður

Þrátt fyrir tap í gær er margt í leik Breiðabliks sem lofaði góðu, sér í lagi á fyrstu þrjátíu mínútum leiksins að sögn Óskars. 

„Frammi­staðan horfir þannig við mér að fyrstu þrjá­tíu mínútur leiksins eru senni­lega þær bestu sem liðið hefur sýnt undir minni stjórn frá því að ég kom til Breiða­bliks. Við stjórnuðum leiknum al­gjör­lega.“

Jason Daði Svanþórsson kom Breiðabliki yfir með glæsilegu marki á 9.mínútu en á fjögurra mínútna kafla á síðasta stundarfjórðungi fyrri hálfleiks svöruðu leikmenn FC Kaupmannahafnar með þremur mörkum.

Leikmenn Breiðabliks fagna marki Jasonar Daða í gærVísir/Getty

„Um leið og þeir ná inn marki rembumst við of mikið við að ná aftur yfir­höndinni í leiknum og það fer með okkur. Leikurinn klárast í raun og veru á þessum síðasta stundar­fjórðungi fyrri hálf­leiks og seinni hálf­leikurinn litast af því að við erum að elta leikinn.“

Leiknum lauk með 6-3 sigri FC Kaupmannahafnar og samanlögðum 8-3 sigri liðsins í einvíginu. Óskar Hrafn er stoltur af frammistöðu sinna leikmanna í leik gærkvöldsins, stoltur af þeim fyrir að hafa ekki gefist upp.

„Að þeir hafi ekki hætt og sýnt styrk og hug­rekki til þess að halda á­fram. Það hefði verið svo auð­velt að leggjast niður. Þetta er eitt­hvað sem við tökum með okkur í næsta verk­efni.“

Besti hálf­tími liðsins, sem varð á síðasta tíma­bili Ís­lands­meistari, undir stjórn Óskars Hrafns.

Hvað er það sem gerir þennan kafla að þeim besta?

„Manni líður bara eins og það sem við lögðum upp með hafi gengið full­kom­lega upp. Það sem að við höfðum séð af FC Kaup­manna­höfn, það sem að við komum með að borðinu. Við stoppuðum þá í því að reyna byggja upp sóknir, við slitum þá í sundur þegar að þeir voru með boltann og náðum að spila í gegnum þá. Við náum einnig, í nokkur skipti, að vinna boltann á hættu­legum stöðum en vorum þá ekki nógu clini­cal í því að nýta þau færi.“

„Orkan var mikil, það fór gríðar­­leg orka í þennan fyrsta hálf­­­tíma leiksins. Við pressuðum þá hátt, stigum mjög hátt á þá. En að ein­hverju leiti gerði það okkur erfitt fyrir að koma til baka þegar að við fáum þetta högg á okkur. Ef við lítum á þetta með heild­­stæðum augum þá er það góða í þessu sú stað­­reynd að við komumst yfir og í þrjá­tíu mínútur var þetta al­vöru leikur. Við fengum tæki­­færi eða tvö til þess að komast í stöðuna 2-0 og koma þeim veru­­lega úr jafn­­vægi.“

Í þessu liði FC Kaup­manna­hafnar búi hins vegar mikil ein­stak­lings­­gæði. Liðið geti einnig refsað and­stæðingum sínum taki þeir eina vonda á­­kvörðun.

„Það, á­samt því að við vorum ekki nægi­lega skyn­samir þegar að við fáum á okkur fyrsta höggið, fór með okkur.“

Evrópudeildin tekur við

Þátt­töku Blika í Evrópu­keppni er hins vegar ekki lokið. Liðið færist niður í undan­keppni Evrópu­deildarinnar og á fyrir höndum ein­vígi gegn Zri­njski Mostar frá Bosníu

„Það er auð­vitað bara mjög erfiður and­stæðingur. Þetta er öflugt lið sem gerði jafn­tefli við Slovan Bratislava á úti­velli á dögunum. Svo mun það reyna á okkur að fara til Bosníu, krefjandi að­stæður sem bíða okkar þar.“

Evrópuævintýri Blika heldur áfram þrátt fyrir tap í KöbenVísir/Getty

„Við munum þurfa að eiga okkar allra bestu leiki til þess að fara í gegnum það ein­vígi. Þetta er lið sem er mjög sterkt varnar­lega og gefur fá færi á sér, eru með leik­menn sem búa yfir miklum ein­stak­lings­gæðum. Lið sem hefur pakkað bosnísku deildinni saman núna tvö ár í röð.

Það er erfitt verk­efni fyrir höndum en verk­efni sem við eigum góða mögu­leika á að fá eitt­hvað út úr ef við spilum vel. Við í þjálfara­t­eyminu byrjum á því í dag eða á morgun að skoða þá í þaula á­samt því að undir­búa okkur fyrir komandi leik gegn KR á sunnu­daginn. Við þurfum að ein­beita okkur að KR því þar er á ferðinni gott lið.“

Upplifa miklar andstæður næstu daga

Skammt stórra högga á milli hjá Íslandsmeisturunum. 

Hvernig er næstu dögum fram að leik háttað hjá ykkur, hvað þurfið þið að passa upp á?

„Við þurfum að halda mönnum ferskum og reyna að fá þá til að endur­stilla hausinn. Það eru miklar and­stæður í þessu líkt og þeir, sem hafa spilað stóra Evrópu­leiki þekkja. Við erum að spila fyrir framan 20 þúsund á­horf­endur á Parken í gær og spilum svo næst á sunnu­degi um Verslunar­manna­helgi á móti KR klukkan tvö þar sem að ég geri ráð fyrir að verði ekki fleiri en svona 180 manns á vellinum. Þetta snýst því að stærstum hluta um að núll­stilla menn.“

Stemningin á Parken í gærkvöldi var mögnuðVísir/Getty

Mikil við­brigði að fara frá Parken yfir á Kópa­vogs­völl, með fullri virðingu fyrir þeim velli, bara í ljósi fjölda á­horf­enda meðal annars.

„Já og líka bara hvað varðar um­gjörð og mómentið. En það er engin af­sökun, þetta er ís­lenska deildin sem við þekkjum, erum vanir og brennum fyrir líka. Þetta verður ekkert vanda­mál en þó hægara sagt en gert að núll­stilla sig og setja sig í þennan gír. Við verðum klárir á sunnu­daginn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×