Fótbolti

„Breiðablik er ekki með marga unga leikmenn og meðalaldur liðsins er frekar hár“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jacob Neestrup tók við FC Kaupmannahöfn í september í fyrra.
Jacob Neestrup tók við FC Kaupmannahöfn í september í fyrra. stöð 2 sport

Jacob Neestrup, þjálfari FC Kaupmannahafnar, á von á erfiðum leik gegn Breiðabliki í kvöld. Liðin mætast þá í fyrri leiknum í annarri umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu á Kópavogsvelli.

„Þetta er lið sem við berum alla virðingu fyrir þar sem þeir eru nokkuð vanir að spila svona leiki. Þeir sigruðu Austria Vín fyrir tveimur árum og spiluðu mjög vel í heimaleiknum gegn Istanbul Basaksehir í fyrra,“ sagði Neestrup í samtali við Val Pál Eiríksson í gær.

„Breiðablik er ekki með marga unga leikmenn og meðalaldur liðsins er frekar hár sem er ekki hefðbundið. Þeir vita því út á hvað þetta gengur. Þetta er mjög reynt lið sem er með mikið sjálfstraust þar sem það hefur unnið fimm leiki í röð. Ég er hrifinn af því sem ég hef séð. Þetta er gott lið sem er vel þjálfað. Þeir eru góðir með boltann, góðir að byggja upp sóknir og ég er hrifinn af gegnumbrotunum þeirra. En þetta er lið sem er vant að hafa boltann. Við berum virðingu fyrir þeim en vitum að ef við gerum okkar eigum við góða möguleika á að komast áfram.“

Neestrup segir að það að leikurinn fari fram á gervigrasi muni hafa á gang mála.

„Það hefur alltaf áhrif því það er miklu erfiðara að pressa og stoppa og breyta um stefnu án bolta. En við erum nokkuð vanir því. Nordsjælland og Silkeborg spila á gervigrasi og við höfum mætt þeim margoft. Þetta er ekki afsökun fyrir okkur fyrir því að standa okkur ekki en þetta hefur almenn áhrif á leikinn.“

Klippa: Viðtal við þjálfara FCK

Tveir Íslendingar eru í herbúðum FCK; Ísak Bergmann Jóhannesson og Orri Steinn Óskarsson, sonur Óskars Hrafns Þorvaldssonar, þjálfara Breiðabliks.

„Við sjáum til hvort þeir spili. Þetta eru tveir góðir leikmenn. Orri er ótrúlegur í vítateignum. Ísak hefur verið svolítið frá byrjunarliðinu en það þýðir ekki að við höldum ekki að hann sé góður leikmaður. Hann er góður leikmaður og frábær drengur sem leggur sig allan fram á hverjum degi. Ef hann spilar, hvort sem hann byrjar inn á eða kemur af bekknum, er ég viss um að hann muni standa sig,“ sagði Neestrup.

Horfa má á viðtalið við Neestrup í spilaranum hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir

„Elska hann en við verðum ó­vinir í 90 mínútur, því miður“

Orri Steinn Óskarsson, framherji FC Kaupmannahafnar, segist ekki sérstaklega hrifinn af því að vera mótherji föður síns, Óskars Hrafns Þorvaldssonar, þjálfara Breiðabliks. Hann vonast þó til að fá að spila í leiknum. Liðin tvö mætast í forkeppni Meistaradeildarinnar í Kópavogi í kvöld.

„Haf á milli okkar og við sjáumst allt­of sjaldan“

Óskar Hrafn Þorvaldsson segir FC Kaupmannahöfn vera sterkasta andstæðing sem hann hefur mætt sem þjálfari Breiðabliks. Blikar þurfi að vera sjálfum sér trúir í einvíginu og megi ekki líta á verkefnið sem ákveðna biðstofu fyrir næsta einvígi sem þeir eiga bókað falli þeir úr keppni. Það sé þá sérkennilegt að mæta syni sínum, Orra Steini Óskarssyni, sem er leikmaður FCK.

FCK sé ekki spennt fyrir því að spila í Kópavogi

Freyr Alexandersson, þjálfari Lyngby í Danmörku, kveðst spenntur fyrir leik Blika við FC Kaupmannahöfn. Hann stýrði Lyngby gegn dönsku meisturunum um helgina og þekkir vel til liðsins.

Ísak Berg­mann um leikinn gegn Blikum: Ætlum að nýta þeirra veik­leika

„Það er mjög gaman en mjög skrýtið. Þegar maður kemur heim er maður að undirbúa sig fyrir landsleiki eða í frí. Það er svolítið öðruvísi að vera í hinu liðinu núna, verð ég að segja,“ sagði Ísak Bergmann Jóhannesson, miðjumaður FC Kaupmannahafnar, í aðdraganda leiks sinna manna á Kópavogsvelli annað kvöld.

Oli­ver fyrir ein­vígið gegn FCK: Þeir hafa í rauninni öllu að tapa

„Gífurlega spenntir, þetta er eitthvað sem manni langar að gera og við getum eiginlega ekki beðið að sýna okkar gæði gegn gæðum þessara leikmanna,“ sagði Oliver Sigurjónsson, miðjumaður Breiðabliks, um viðureign morgundagsins gegn FC Kaupmannahöfn í forkeppni Meistaradeildar Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×