Innlent

Um 1200 hjól­reiða­kepp­endur á Hvols­velli

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Keppnin hófst klukkan 7 í morgun.
Keppnin hófst klukkan 7 í morgun.

Hjólreiðakeppnin „The Rift“ fer fram á Hvolsvelli og nágrenni um helgina. Keppnin var fyrst haldin árið 2019 og hefur farið ört stækkandi. Nú taka þátt 1200 keppendur sem hjóla 100 eða 200 km leið frá Hvolsvelli, inn á Fjallabak og til baka. Mikið umstang fylgir slíkri keppni og þessum 1200 keppendum fylgir annað eins af aðstoðar- og stuðningsfólki. Því er ljóst að margt verður um manninn og mikið líf á Hvolsvelli alla helgina.

Fyrir Rangárþing eystra og Hvolsvöll hefur þetta mikla þýðingu. Sveitarfélagið fyllist af fólki sem nýtir sér alla þá þjónustu sem er í boði, hótel og gististaðir upp bókaðir og tjaldsvæði fyllast af fólki. Mikið líf, fjör og góð stemmning myndast í bænum. Auðvitað er þetta líka hellings kynning á náttúrunni okkar í Rangárþingi og landinu í heild“, segir Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri. Það er keppt í tveimur vegalengdum, 100 km og 200 km. Þetta eru mest megnis erlendir keppendur, margir þeirra atvinnumenn í sportinu, þó talsvert af Íslendingum líka.

Anton Kári, sveitarstjóri, sem reiknar með miklu lífi og fjöri í Rangárþingi eystra um helgina í kringum keppnina.Aðsend

„Það er vel þess virði að fá sér rúnt á Hvolsvöll og taka þátt í gleðinni, það eru allir hjartanlega velkomnir til okkar,“ bætir Anton við.

Allar frekari upplýsingar um keppnina má finna hér

Reiknað er með spennandi hjólreiðakeppni þar sem keppendur hjóla 100 eða 200 leið frá Hvolsvelli inn á Fjallabak og til baka.Aðsend

Um malarhjólakeppni er að ræða með um 1200 þátttakendum.Aðsend


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×