Matur

BBQ kóngurinn: Það er kóríanderbragð af sápu

Boði Logason skrifar
Alfreð Fannar elskar að grilla og eru þættir hans BBQ kóngurinn sýndir alla fimmtudaga klukkan 18:55 á Stöð 2.
Alfreð Fannar elskar að grilla og eru þættir hans BBQ kóngurinn sýndir alla fimmtudaga klukkan 18:55 á Stöð 2. Stöð 2

Í fjórða þætti af BBQ kónginum grillaði Alfreð Fannar Nauta taco úr nautaskanka, sem stundum er kallaður Þórshamar.

„Sumir segja að það sé sápubragð af kóríander, en það er ekki rétt, það er kóríenderbragð af sápu,“ sagði Alfreð Fannar meðal annars þegar hann skreyti réttinn með hinni vinsælu plöntu. 

Hægt er að nálgast klippu úr þættinum hér og fyrir neðan má sjá uppskriftina og aðferð. 

Klippa: BBQ kóngurinn: Nauta taco úr Þórshamri

Hér má sjá fleiri uppskriftir og þætti frá BBQ kónginum.

Nauta taco úr Þórshamri

  • Nautaskanski (Þórshamar)
  • Olía
  • Umami (fæst á bbqkóngurinn.is)
  • 3 lúkur hickory viðarspænir eða 3 hickory viðarkubbar
  • 1 dós Einstök bjór
  • Hálfur rauðlaukur
  • Kóríander til skrauts
  • Vorlaukur til skrauts
  • Hrískökur til skrauts
  • Habanero ferskju hot sauce (fæst á bbqkóngurinn.is)
  • Tortillur
  • Setjið olíu á kjötið og kryddið vel með Umami.
  • Kyndið grillið í 120 gráður og setjið viðarspænir eða kubba á grillið.
  • Stingið kjöthitamæli í þykkasta partinn og reykiði þar til kjötið nær 72 gráðum í kjarnhita. (Getur tekið allt upp í 8 tíma)
  • Takið kjötið af og pakkið inn í þykkan álpappír sem þið fyllið með bjór.
  • Setjið kjötið aftur á grillið þar til það nær 96 gráðum í kjarnhita.
  • Takið kjötið af og leyfið því að hvíla við stofu hita 1 - 1 1/2 tíma.
  • Skerið rauðlauk, kóríander, vorlauk og hrískökur smátt
  • Þegar kjötið hefur fengið að hvíla rífið þið það niður.
  • Hitið tortillur og setjið kjöt á.
  • Skreytið með rauðlauk, kóríander, vorlauk, hrískökur og hot sauce

BBQ kóngurinn er sýndur á Stöð 2 alla fimmtudaga klukkan 18:55.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×