Fótbolti

Val­geir og fé­lagar örugg­lega á­fram í Meistara­deildinni

Smári Jökull Jónsson skrifar
Valgeir Lunddal lék allan leikinn fyrir Häcken í kvöld.
Valgeir Lunddal lék allan leikinn fyrir Häcken í kvöld. Vísir/Hulda Margrét

Sænska liðið Häcken tryggði sér örugglega sæti í næstu umferð Meistaradeildar Evrópu eftir 2-0 sigur á The New Saints frá Wales í kvöld.

Valgeir Lunddal Friðriksson og félagar hans í Häcken voru í fínum málum eftir heimaleikinn gegn The New Saints þar sem Häcken vann 3-1 sigur á heimavelli.

Þegar Ibrahim Sadiq kom Häcken síðan í 1-0 í leiknum í kvöld á 19. mínútu var björninn svo gott sem unninn. Sænsku meistararnir bættu við öðru marki í uppbótartíma og tryggðu sér þar með öruggan 5-1 sigur samanlagt.

Valgeir Lunddal lék allan leikinn í liði Häcken sem mætir sigurvegaranum úr viðureign KÍ frá Færeyjum og ungverska liðsins Ferencvaros. Seinni leikur þeirra liða verður leikinn á morgun en markalaust er eftir fyrri leikinn í Færeyjum.

Árni Vilhjálmsson sat allan tímann á bekk Zalgiris sem tryggði sér einnig sæti í næstu umferð. Liðið vann 2-1 sigur á FC Struga frá Norður-Makedóníu en markalaust var í einvíginu eftir fyrri leikinn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×