Erlent

Far­þegar þurftu að horfa upp á grind­hvala­dráp

Kristinn Haukur Guðnason skrifar
Farþegarnir voru í losti eftir að hafa orðið vitni að drápunum.
Farþegarnir voru í losti eftir að hafa orðið vitni að drápunum. EPA

Breska skemmtiferðaskipafélagið Ambassador Cruise Lines hefur beðið farþega sína afsökunar fyrir að láta þá verða vitni að grindhvaladrápi. Meirihluti farþeganna var í uppnámi eftir atvikið.

„Við urðum fyrir miklum vonbrigðum með það að veiðin hafi verið á sama tíma og skipið okkar var við bryggju. Við mótmælum harðlega þessari tímaskekkju og höfum unnið með góðgerðasamtökunum ORCA til að læra af og vernda höfrunga og önnur smáhveli í bresku og evrópsku hafsvæði síðan árið 2021,“ segir í yfirlýsingu Ambassador.

Grindhvalir eru litlir tannhvalir skyldir höfrungum.EPA

Skip þeirra, Ambition sem tekur 1.000 farþega, var í Þórshöfn í Færeyjum þegar 40 grindhvalir voru reknir upp í fjöru og þeim slátrað. En hvölunum er smalað á bátum í hjörð upp að landi þar sem þeir eru dregnir með krókum og skornir með sveðjum. Sjórinn og fjaran verða rauðlituð af blóði við aðfarirnar.

„Við erum gríðarlega vonsvikin að þetta skuli hafa gerst eftir margra vikna uppbyggilegt samtal við færeysku ríkisstjórnina og ferðamálastofu Færeyja um málið,“ sagði Christian Verhounig, stjórnarformaður Ambassador við breska blaðið Independent. „Við höldum áfram að fræða farþega okkar og starfsfólk og hvetjum þau til þess að hvorki kaupa né borða hvala eða höfrungakjöt og að þau samþykki ekki hvalveiðar né höfrungaveiðar.“

Mikil fækkun

Færeyingar veiða um 800 grindhvali á ári og segja veiðarnar sjálfbærar. Það sé löng hefð að veiða grindhvali í eyjunum. Grindhvölum hefur hins vegar fækkað úr 780 þúsund í 350 þúsund í norðaustur Atlantshafi frá árinu 1989 til 2015.

Dýraverndunarsinnar í Berlín mótmæla færeysku grindhvaladrápi.EPA

Dýraverndunarsamtök hafa hvatt skemmtiferðaskipa fyrirtæki að sniðganga Færeyjar vegna grindhvaladrápa. Með því að heimsækja eyjarnar sé verið að styðja við iðjuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×