Matur

BBQ kóngurinn: Gómsætur risa humar

Boði Logason skrifar
Alferð Fannar Björnsson er kóngurinn, BBQ kóngurinn.
Alferð Fannar Björnsson er kóngurinn, BBQ kóngurinn. Stöð 2

Í þriðja þætti af BBQ kónginum grillaði Alfreð Fannar risa humar með hvítlauk, sítrónu og chilli. 

Alfreð Fannar var í góðum gír áður en hann setti humarinn á grillið. „Ég er svo spenntur að ég er kominn með sjóbragð í munninn,“ sagði hann í þættinum. 

Hægt er að nálgast klippu úr þættinum og fyrir neðan má sjá uppskriftina og aðferð. 

Klippa: BBQ kóngurinn: Gómsætur risa humar

Risa humar 

  • Risa Rocklobster (hægt að panta hjá Norðanfiski)
  • Grillsalt
  • Weber seafood blend viðarspænir
  • 100g Smjör
  • 5 Hvítlauksgeirar
  • Steinselja
  • 1 msk Chilli
  • Sítrónu börkur af einni sítrónu
  • Safi úr hálfri sítrónu

  • Kyndið grillið i 200 gráður.
  • Klippið bakið á humrinum að halanum án þess að fara alla leið í gegn. Fjarlægið görnina, lyftið kjötinu upp og leggið á skelina.
  • Stráið grillsalti yfir.
  • Setjið humarinn í óbeinan hita.
  • Reykið hálfa lúku af viðarspænum á kolin.
  • Fín saxið, hvítlauk chilli og steinselju.
  • Setjið smjör í pott ásamt hvítlauk, chilli, sítrónuberki og sítrónusafa.
  • Bætið steinselju út í pottinn þegar allt hefur bráðnað saman.
  • Pennslið humarinn með smjörinu á meðan eldun stendur.
  • Berið humarinn fram ásamt smjörinu.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×