Lífið

„Hæg­lætis­veisla“ í Skaga­firði um helgina

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Félagsleikar Fljótamanna fara fram um helgina. 
Félagsleikar Fljótamanna fara fram um helgina.  Vísir/Vilhelm

Um helgina fer fram svokölluð hæglætishátíð að Fljótum í Skagafirði. Jakob Birgisson segist verulega spenntur fyrir viðburðinum en hann er meðal þeirra sem munu skemmta á hátíðinni. 

„Ég var sjálfur heillaður af Fljótunum árið 2021,“ segir Jakob í samtali við Vísi. Hann segist hafa heillast af staðnum eftir kaffiboð sem hann fór í hjá heimamanni með félaga sínum Guðjóni Ragnari Jónassyni, kennara og rithöfundi. 

Hann segir að þegar honum hafi verið boðið að koma í Fljótin til þess að skemmta á hátíðinni hefði hann ekki getað sagt nei. „Ég hefði komið þótt ég hefði verið í Brasilíu,“ segir Jakob. 

Jakob segir mikla gestrisni ríkja á staðnum og vekur athygli á Kaupfélaginu í Ketilási. Hann segir alla Íslendinga þurfa að leggja sér leið þangað „Þó það sé ekki nema bara fyrir menningarlega gildið.“

„Ég er ótrúlega spenntur og ég á eiginlega ekki von á öðru en að ég muni gera þetta að árlegri hefð,“ segir Jakob. „Og ég er ekki einu sinni kominn í fljótin!“

Upplýsingar um hátíðina má nálgast á vefsíðu Skagafjarðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×