Erlent

Fékk af­skorinn fingur í pósti

Máni Snær Þorláksson skrifar
Emmanuel Macron fékk sendan fingur í pósti á mánudaginn. Hann var staddur í Vilníus í Litáen á fundi Atlantshafsbandalagsins í gær.
Emmanuel Macron fékk sendan fingur í pósti á mánudaginn. Hann var staddur í Vilníus í Litáen á fundi Atlantshafsbandalagsins í gær. EPA/Toms Kalnins

Emmanuel Macron, forseti Frakklands, fékk afskorinn fingur í pósti síðastliðinn mánudag. Pakkinn með fingrinum var sendur í Élysée-höll, bústað forsetans í París. 

Samkvæmt upplýsingum frá heimildarmanni Evening Standard var fingurinn strax settur í ísskáp til að hægt væri að rannsaka hann. Ísskápurinn sem fingurinn var settur í hafi verið notaður af lögreglumönnum til að geyma mat.

„Þetta var gert til að sjá til þess að fingurinn væri varðveittur og svo það væri hægt að greina hans eins fljótt og hægt var,“ er haft eftir heimildarmanninum sem sagður er vera frá bústað forsetans. 

Rannsóknir á fingrinum hafi leitt í ljós að hann hafi tilheyrt manneskju sem var á lífi þegar hann var skorinn af. Fullyrt er að maðurinn sem fingurinn tilheyrði hafi fundist og að hann hafi fengið læknishjálp.

Enginn miði eða neitt slíkt fylgdi fingrinum í pakkanum. Það ku hafa gert rannsóknarlögreglumenn ráðþrota. Samkvæmt Mirror er þetta í fyrsta skipti sem forseta Frakklands berst pakki með líkamshluta. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×