Íslenski boltinn

Skotfóturinn verið í kælingu

Valur Páll Eiríksson skrifar
Damir Muminovic.
Damir Muminovic. Vísir/Arnar

Damir Muminovic var hetja Breiðabliks í leik liðsins við Shamrock Rovers í Dyflinni í gær. Glæsimark hans eykur á tilkall hans til að taka fleiri aukspyrnur.

Damir átti að venju góðan leik í hjarta varnar Breiðabliks en að hann skori með þrumufleygum úr aukaspyrnu er sjaldgæfari sjón. Damir er fæddur í Serbíu og lá því beinast við að spyrja hvort væri hægt að líkja honum við landa hans Sinisa Mihajlovic heitinn, sem var þekktur fyrir sína þrumufleyga.

„Já, það getur verið,“ segir Damir og hlær. „Maður hefur séð nokkur mörk frá honum sem eru svipuð.“

En hvar hefur þessi skotfótur verið?

„Í kælingu,“ segir Damir. 

„Höggi [Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Blika] er búinn að vera að taka aukspyrnunar í sumar og er númer eitt þar. Ég fékk tækifærið núna og nýtti það,“ segir Damir sem fann strax að boltinn myndi syngja í netinu.

„Það má segja það. Ég fann strax fyrir því. Svo horfði ég á eftir boltanum og sá að hann var inni. Það var mjög ljúf tilfinning.“

Damir hefur þá sterkara tilkall til að taka fleiri spyrnur á næstunni.

„Við Höggi förum yfir þetta, hvort ég fái ekki næstu aukaspyrnu þarna einhversstaðar fyrir utan,“ segir Damir.

Lið sem var í riðlakeppninni í fyrra

Shamrock-liðið sem Breiðablik vann í gær komst í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar í fyrra. Það sýni því styrk Blika að vinna þá á þeirra heimavelli.

„Mér finnst þeir [Shamrock] bara mjög góðir. Svipað lið og við erum, þeir vilja pressa og halda bolta. Ég held að þeir hafi ekki búist við því að við myndum pressa þá svona hátt. En þeir eru mjög góðir og erfitt að eiga við þá,“

„Mér fannst fyrri hálfleikurinn mjög góður. Við pressuðum þá vel, unnum seinni boltana og héldum boltanum vel innan liðsins. Þeir sterkari inn í seinni hálfleikinn og pressuðu meira á okkur og fengu fín færi. Við hefðum kannski getað mátt gera eitthvað betur en við náðum að verjast þessu og þetta var bara allt í lagi,“ segir Damir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×