Innlent

Vissi ekki af á­hyggjum Lyfja­­stofnunar af megrunar­lyfi

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Alma Möller er landlæknir.
Alma Möller er landlæknir. Vísir/Vilhelm

Landlæknisembættinu hafa ekki borist ábendingar um að megrunarlyfjum sé ávísað með óábyrgum hætti af læknum hér á landi. Embættið hefur óskað eftir upplýsingum frá Lyfjastofnun vegna ábendinga til Lyfjastofnunar Evrópu um möguleg tengsl lyfjanna við sjálfskaða-og sjálfsvígshugsanir.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í svari landlæknis við skriflegri fyrirspurn Vísis um ávísun megrunarlyfja. Tilefnið eru fréttir af því að Lyfjastofnun Íslands hafi gert Lyfjastofnun Evrópu viðvart um þrjú tilvik þar sem einstaklingar fundu fyrir sjálfsskaða-eða sjálfsvígshugsunum á lyfjunum.

Forstjóri Lyfjastofnunar hefur áður sagt í samtali við Vísi að rúmlega tíu þúsund manns séu nú á lyfjunum hér á landi. Lyfin eru tiltölulega ný af nálinni og hefur notkun þeirra stóraukist svo að stefnir í skort á tilteknu lyfi, Ozempic í sumar.

Aukningin þurfi ekki að koma á óvart

„Embætti landlæknis hefur ekki verið upplýst um málið en hefur óskað upplýsinga frá Lyfjastofnun,“ segir í svörum landlæknis til Vísis. Þar segir að eitt af meginhlutverkum embættis landlæknis sé að hafa eftirlit með lyfjaávísunum og stuðla að skynsamlegri lyfjanotkun landsmanna.

„Lyfin sem um ræðir eru ný af nálinni og virðast gefa góða raun í meðhöndlun sykursýki og stuðla jafnframt að þyngdartapi. Aukning á notkun þessara lyfja ætti því ekki að koma á óvart. Þá hefur embættinu ekki borist erindi er varða misnotkun umræddra lyfja, en frá sjónarhóli embættisins má fyrst og fremst koma í veg fyrir slíkt með því að heilbrigðisstarfsmenn stundi ábyrga ávísun lyfja.“

Segir embættið jafnframt í svörum sínum að því hafi ekki borist ábendingar um að lyfinu sé ávísað með óábyrgum hætti. Segir landlæknir auk þess ekki hafa upplýsingar um það hvort læknar hafi fjárhagslegan ávinning af því að ávísa lyfjunum.

„Í 48gr. lyfjalaga nr. 100/2020, sem Lyfjastofnun framfylgir, er sérstaklega kveðið á um að þeim sem ávísa lyfjum beri að stuðla að ábyrgri notkun lyfja við ávísun þeirra til sjúklinga með öryggi þeirra og lýðheilsusjónarmið að leiðarljósi. Það eru Sjúkratryggingar Íslands sem ákveða greiðslufyrirkomulag og sinna eftirliti þar að lútandi.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×