Fótbolti

Sjáðu mörkin tólf sem komu Blikum áfram: Hitað upp fyrir beina frá Dublin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Blikar fagna marki Jasons Daða Svanþórssonar á móti Buducnost Podgorica frá Svartfjallalandi.
Blikar fagna marki Jasons Daða Svanþórssonar á móti Buducnost Podgorica frá Svartfjallalandi. Vísir/Hulda Margrét

Breiðablik mæta í kvöld írska félaginu Shamrock Rovers í fyrri leik liðanna í Undankeppni Meistaradeildar UEFA.

Leikur Shamrock Rovers og Breiðabliks hefst klukkan 19.00 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Seinni leikurinn er síðan spilaður á Kópavogsvellinum í næstu viku.

Í boði fyrir sigurvegarann eru leikir á móti danska félaginu FC Kaupmannahöfn.

Blikar komust í þessa viðureign með því að vinna báða leiki sína í forkeppni undankeppninnar sem fram fór í Kópavogi.

Blikarnir skoruðu þá tólf mörk í tveimur leikjum þar sem þeir unnu 7-1 sigur á Tre Penne frá San Marínó 5-0 sigur á Buducnost Podgorica frá Svartfjallalandi.

Mörkin í fyrri leiknum skoruðu þeir Höskuldur Gunnlaugsson (2), Ágúst Eðvald Hlynsson (2), Klæmint Olsen, Stefán Ingi Sigurðarson og Viktor Karl Einarsson.

Mörkin í seinni leiknum skoruðu þeir Viktor Karl Einarsson, Stefán Ingi Sigurðarson, Gísli Eyjólfsson, Höskuldur Gunnlaugsson og Jason Daði Svanþórsson.

Hér má sjá mörkin tólf sem Breiðabliksliðið skoraði í þessum tveimur stórsigrum.

Klippa: Mörk Blika í forkeppni Meistaradeildar Evrópu 2023-24

Næst á dagskrá eru tveir leikir við Shamrock Rovers sem er írskur atvinnumannaklúbbur með aðsetur í Tallaght í Suður-Dublin. Hér fyrir neðan má sjá hvernig Blikar kynna liðið fyrir stuðningsmönnum sínum á blikar.is.

Liðið keppir í úrvalsdeild Írlands og er sigursælasta félag írska lýðveldisins. Félagið hefur unnið Írlandsmeistaratitilinn 20 sinnum og FAI bikarinn 25 sinnum.

Shamrock Rovers var stofnað árið 1899. Þeir unnu deildarmeistaratitilinn í fyrstu tilraun tímabilið 1922/23 og festu sig í sessi sem sigursælasta félag Írlands árið 1949 en þá hafið félagið unnið 44 stóra titla. Félagið varð fyrsta írska liðið til að keppa í Evrópukeppni árið 1957.

Félagið hefur náð mjög góðum árangri í Intertoto keppninni og Evrópudeildinni. Fyrsti sigur þeirra í Meistaradeildinni var 1-0 sigur í undankeppninni 2011/12 gegn FC Flora frá Tallinn á Tallaght Stadium í Dublin. Stærsti sigur þeirra i Evrópukeppni var samanlagður 7-0 sigur á Fram í fyrstu umferð UEFA-bikarsins í september 1982.

Í ágúst 2011 varð Shamrock Rovers fyrsta írska liðið til að komast í riðlakeppni Evrópudeildar UEFA þegar þeir unnu Partizan Belgrad 2-1 í framlengdum leik í Serbíu og unnu þar með samanlagt 3-2. Í fyrra komust Shamrok Rovers í riðlakeppni Sambandsdeildar UEFA 2022/23.

Ferill Shamrock Rovers í Evrópu 2022/23:

  • - Meistaradeildin: Sigruðu Hibernians í fyrstu umferð undankeppni samanlagt 3-0. Féllu út í annari umferð undankeppni fyrir Ludogorets samanlagt 2-4.
  • - Evrópudeildin: Höfðu betur gegn Shkupi í þriðju umferð undankeppni samanlagt 5-2. Fellu út fyrir Ferencváros í umspili samanlagt 1-4.
  • - Sambandsdeildin. Í F-riðli með Gent, Molde og Djurgården. Enda í 4. sæti eftir 2 jafntefli og 4 töp.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×