Innlent

Heyrnar­lausir penna­sölu­menn reyndust í raun heyrnar­lausir

Kristinn Haukur Guðnason skrifar
Þrír Úkraínumenn seldu penna fyrir félagið.
Þrír Úkraínumenn seldu penna fyrir félagið.

Pennasölumenn á Selfossi eru heyrnarlausir Úkraínumenn sem höfðu fengið heimild til að selja í nafni Félags heyrnarlausra. Lögreglunni bárust margar tilkynningar frá borgurum.

„Lögreglunni á Suðurlandi hafa borist fjölmargar tilkynningar nú í kvöld vegna fólks sem gengur í hús á Selfossi og selur penna í nafni félags heyrnarlausra. Lögregla getur staðfest að umrætt fólk er á vegum félags heyrnarlausra og hvetur fólk til að taka vel á móti þeim,“ segir í tilkynningu Lögreglunnar á Suðurlandi.

„Lögreglan telur engu að síður ástæðu til að hrósa almenningi fyrir árvekni sína enda dæmi um að einstaklingar villi á sér heimildir og nýti til þess traust almennings til rótgróinna samtaka og málefna.“

Hvetja fólk til að tilkynna

Fyrr í sumar hafði Félag heyrnarlausra gefið út tilkynningu þar sem sagt var að hvorki félagið né heyrnarlausir aðilar stæðu fyrir fjársöfnunum á götum úti annarri en þeirri að standa fyrir sölu vorhappdrættis félagsins með því að ganga í hús. Miðarnir séu vel merktir og númeraðir.

„Hvetjum við fólk til að tilkynna beinar fjársafnanir til lögreglu eða senda ábendingu á deaf@deaf.is ef uppvíst verður um slíka söfnun,“ sagði í tilkynningunni frá 31. maí.

Kjaftshögg fyrir málstaðinn

Daði Hreinsson, framkvæmdastjóri Félags heyrnarlausra, segir að þrír pennasölumenn á Selfossi hafi vissulega verið á vegum félagsins.

„Þetta voru þúsund pennar sem við áttum eftir sem við leyfðum heyrnarlausum úkraínskum flóttamönnum að selja í nafni félagsins á Suðurlandi og í Borgarfirðinum. Til að gefa þeim tækifæri til þess að afla sér vinnu og matar,“ segir Daði. Þeir hafi áður selt á Hvolsvelli og í Vestmannaeyjum.

Hann segir að svikastarfsemi hafi komið mjög illa niður á félaginu. Það er að útlenskir einstaklingar hafa staðið fyrir utan verslunarmiðstöðvar og við fjölmenna viðburði og þóst vera heyrnarlausir.

„Fólk hefur efasemdir af því að í sumar hafa óprúttnir aðilar verið að biðja um styrki í nafni heyrnarlausra,“ segir Daði. „Fólk virðist nota heyrnarlausa sem bitbein í þessu því þú sérð ekki utan á þeim að þeir séu fatlaðir. Þetta er kjaftshögg fyrir málstað og baráttu Félags heyrnarlausra fyrir sinni viðveru.“

Reiknar hann með að félagið hætti með þessa sölu á pennum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×