Innlent

Hildur Ragnars skipuð for­stjóri Þjóð­skrár Ís­lands

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Hildur Ragnars hefur verið skipuð nýr forstjóri Þjóðskrár.
Hildur Ragnars hefur verið skipuð nýr forstjóri Þjóðskrár. Stjórnarráðið

Hildur Ragnars hefur verið skipuð í embætti forstjóra Þjóðskrár Íslands frá morgundeginum. Umsækjendur um embættið voru átta en þrír drógu umsókn sína til baka.

Það er Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, sem skipar í stöðuna. Hæfnisnefnd var ráðherra til ráðgjafar við mat á umsækjendum.

Þetta segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Hildur hefur lokið MSc prófi í lyfjafræði frá Háskóla Íslands og MBA námi frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur verið settur forstjóri Þjóðskrár frá 1. júní 2022. 

Hún var áður framkvæmdastjóri á skrifstofu Þjóðskrár frá árinu 2020. Hún gegndi stjórnunarstörfum sem framkvæmdastjóri hjá Medis á árunum 2008 til 2020 og hefur mikla reynslu af stefnumótun og áætlanagerð í innlendu og alþjóðlegu starfsumhverfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×