Innlent

Greiddi sína skatta af hundrað milljóna króna hagnaði

Árni Sæberg skrifar
Kristrún Frostadóttir er formaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi aðalhagfræðingur Kviku banka.
Kristrún Frostadóttir er formaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi aðalhagfræðingur Kviku banka. Vísir/Vilhelm

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingar, greiddi um 25 milljónir króna í skatt vegna 101 milljónar króna hagnaðar af áskriftarréttindum í Kviku banka. Hún hafði þegar greitt um 22 milljónir í fjármagnstekjur af hagnaðinum en það var mat Ríkisskattstjóra að greiða ætti tekjuskatt af honum.

Skattayfirvöld tóku nýverið til skoðunar hvort skattleggja ætti áskriftarréttindi í Kviku, sem voru seld starfsmönnum fjármálafyrirtækisins á árunum 2017 til 2019, sem launatekjur en ekki fjármagnstekjur. Niðurstaða í málinu varðar tugi starfsmanna Kviku, jafnvel hátt í hundrað, og leiðréttingin á skattgreiðslum gæti hlaupið á hundruðum milljóna króna. Innherji fjallaði ítarlega um málið á dögunum:

Kristrún Frostadóttir var aðalhagfræðingur bankans frá árinu 2018 til ársins 2021. Hún nýtti sér áskriftarréttindi fyrir þrjár milljónir króna og hagnaðist um 101 milljón króna á viðskiptunum.

Bað um að fá að staðgreiða

Heimildin birti í morgun frétt eftir að hafa sent Kristrúnu fyrirspurn vegna skattamála í tengslum við áskriftarréttindin.

Í svari sínu segir hún að Skatturinn hafi sent frá sér tilmæli þess efnis að greiða skyldi tekjuskatt af hagnaði af áskriftarréttindum. Hún hafi ekki gert athugasemdir við það mat Skattsins og beðið um að fá að greiða mismuninn strax. Hún hafi þegar greitt 25 milljónir króna í ofanálag við þær 22 sem hún hafði þegar greitt, 46,25 prósent skatt í heildina. 

Þá segist hún hafa upphaflega greitt fjármagnstekjuskatt af hagnaðinum í samræmi við leiðbeiningar frá vinnuveitanda sínum, Kviku banka.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×