Körfubolti

At­lanta Hawks skipta John Collins til Utah Jazz fyrir hinn 36 ára Rudy Gay

Siggeir Ævarsson skrifar
Collins hefur leikið með Atlanta Hawks síðan 2017, lengst allra í hópnum þar til nú
Collins hefur leikið með Atlanta Hawks síðan 2017, lengst allra í hópnum þar til nú vísir/getty

Atlanta Hawks og Utah Jazz hafa komist að samkomulagi um að skipta á þeim John Collins og Rudy Gay. Við fyrstu sýn virðist vera um ójöfn skipti að ræða en Hawks virðast fyrst og fremst vera að losa sig við há laun Collins.

Collins var valinn af Hawks í nýliðavali NBA 2017 með 19. valrétt og hefur síðan þá hægt og bítandi unnið sér sess sem byrjunarliðsmaður og verið drjúgur skorari. Tímabilið 2020-21 skoraði hann rúm 17 stig að meðaltali í leik og tók rúmlega 7 fráköst, og fékk í kjölfarið nýjan og sæmilega feitan samning.

Hann var í vetur næst launahæsti leikmaður liðsins með 23,5 milljónir í árslaun og var með samning til loka árs 2026, síðasta árið með ákvæði um framlengingu ef hann svo kysi. En nú er ljóst að Hawks hafa ekki áhuga á að borga honum meira og fá í staðinn Rudy Gay, sem er á síðustu metrum síns ferils.

Gay, sem er fæddur 1986 og verður 37 ára í ágúst, hefur síðustu fjögur tímabil aðeins verið sex sinnum í byrjunarliði, mun fá tæpar 6,5 milljónir í laun næsta vetur, samanborið við rúmar 25 milljónir sem Collins á inni. 

Hér er því fyrst og fremst um sparnaðaraðgerð að ræða hjá Hawks sem um leið búa sér til svigrúm fyrir frekari breytingar og uppbyggingu á sinni liðskipan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×