Innlent

Gekk ber­serks­gang í sumar­bú­stað

Árni Sæberg skrifar
Maðurinn var meðal annars sakfelldur fyrir að hóta lögregluþjóni lífláti í lyftu á lögreglustöðinni á Selfossi.
Maðurinn var meðal annars sakfelldur fyrir að hóta lögregluþjóni lífláti í lyftu á lögreglustöðinni á Selfossi. Vísir/Vilhelm

Selfyssingur á þrítugsaldri hefur verið dæmdur til sex mánaða fangelsisvistar fyrir fimm líkamsárásir, brot gegn valdstjórninni og umferðarlagabrot. Meðal brotanna eru fjórar líkamsárásir framdar í sumarbústað sama kvöldið.

Fyrsta ákæra á hendur manninum er dagsett í ágúst árið 2021. Samkvæmt ákæru voru málavextir þeir að lögregla fór að Hótel Selfossi vegna tilkynningar um slagsmál fyrir utan hótelið í júní árið 2020. Þar hafi þeir hitt fyrir hóp fólki sem hélt manninum niðri vegna þess hve æstur hann var.

Maðurinn hafi verið handtekinn og færður til fangaklefa þar sem hann var verulega dónalegur og með skæting. Hann hafi meðal annars hótað lögregluþjónum lífláti og barsmíðum.

Í skýrslu lögreglumanns kemur fram að þegar lögreglumenn hafi verið að færa manninn í lyftu á lögreglustöð hafi með verið með derring, og þegar þeir hafi fært hann að fangamóttöku hafi hann reynt að sparka í fótlegg lögreglumannsins en ekki hitt. Þá hafi hann sagt „Brjóttu á mér hendina áður en ég fucking drep þig, áður en ég drep þig, ég mun stinga þig í andlitið, treystu mér, ég drep þig.“

Brjálaðist í sumarbústað

Annar ákæruliður er dagsettur september árið 2020. Í frumskýrslu lögreglu segir að lögreglu hafi borist  tilkynning í janúar árið 2020 vegna óláta í sumarbústað á Vaðnesvegi, þar sem maður hefði veist að nokkrum og ærst eftir rifrildi. Á vettvangi hafi lögreglumenn hitt fyrir tilkynnanda, sem kveðið hafi manninn hafa slegið hann í höfuðið og ráðist á nokkra aðra. 

Þá hafi lögreglumenn farið inn í sumarbústaðinn og hitt þar manninn í einu herbergi bústaðarins, hvar hann hafi setið einn og verið í símanum. Hann hafi verið frekar rólegur, sjáanlega mjög ölvaður og í uppnámi. Aðspurður hafi hann kveðið ekkert hafa gerst og þetta væri allt bull. 

Í eldhúsi bústaðarins hafi verið fólk sem allt var í miklu uppnámi og talsvert ölvað. Hafi reynst erfitt að fá greinargóðan framburð hjá því, en það þó sammælst um að upp hafi komið atvik inni í einu herbergjanna þar sem maðurinn hafi gengið fram af þolinmæði hinna með dónaskap og leiðindum. 

Hann hafi verið æstur og árásargjarn sem hafi endað með handalögmálum milli hans og annarra. 

Vitni hafi lýst atvikum svo að maðurinn hafi verið einn inni í herbergi með konu og þrír hafi verið að reyna að komast inn í herbergið. Maðurinn hafi verið ósáttur við það og lamið einn í vinstra eyrað, kýlt annan í nefið og skallað hann og bitið þriðja í vinstri öxlina.

Þegar lögreglu bar að garði hafi eitt vitnið verið með greinilegt bitfar á öxlinni, sem blæddi úr og virtist talsvert djúpt. Annar hafi verið með sjáanlega áverka í andliti, mjög bólginn við nefbein og ekki getað andað í gegnum aðra nösina. Hann hafi einnig veriðbólginn á enni. Sá þriðji hafi ekki verið með sjáanlega áverka.

Þá hafi fjórða vitnið og brotaþolinn mætt á lögreglustöð ásamt konunni sem hafði verið í herberginu með manninum. Sá lýsti atvikum þannig að hann hafi verið að gera að sárum eins mannanna í sófa í stofu bústaðarins, þegar maðurinn hafi komið þangað mjög æstur, bitið hann í nefið og slegið í andlitið.

Fyrir dómi neitaði maðurinn sök en kannaðist við að hafa slegið frá sér í bústaðnum. Það hafi verið gert í neyðarvörn þegar meintir brotaþolar veittust að honum. Í dómi Héraðsdóms Suðurlands segir að sú fullyrðing eigi sér ekki stoð í gögnum málsins. 

Greip í nærbuxur manns

Þá var maðurinn einnig ákærður fyrir líkamsárás með því að hafa í maí árið 2020, framan við inngang að eldsneytisverslun á Selfossi, veist að manni, með því að grípa aftan í nærbuxur sem hann klæddist og kasta honum þannig til hliðar og örskömmu síðar veist að honum að nýju, gripið í peysu sem hann klæddist og kastað honum þannig að hann lenti á baki á stétt og þar sem hann lá, fyrst sparkað í hægri hlið líkama hans og svo gripið aftur í peysu sem hann klæddist og rifið hann þannig upp af stéttinni og kastað honum aftur til jarðar; allt framangreint með þeim afleiðingum að hann hlaut þreifi eymsli yfir mjaðmabeinum og þjóvöðva.

Maðurinn játaði þetta brot sitt skýlaust auk þess að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengi.

Maðurinn var sakfelldur í öllum ákæruliðum í héraði og dæmdur til sex mánaða fangelsisvistar, þar af var fullnustu þriggja mánað frestað til tveggja ára.

Þá var hann dæmdur til að greiða 120 þúsund krónur í sekt og þola ævilanga sviptingu ökuréttinda, að greiða einum brotaþola 300 þúsund krónur í miskabætur og 250 þúsund krónur í málskostnað og að greiða allan sakarkostnað, rúmlega eina milljón króna.

Landsréttur staðfesti dóm héraðsdóm með vísan til heimilda hans. Þá var honum gert að greiða allan áfrýjunarkostnað málsins tæplega 800 þúsund krónur og málskostnað brotaþola vegna málsmeðferðar fyrir Landsrétti, 250 þúsund krónur.

Dóma Landsréttar og Héraðsdóms Suðurlands má lesa hér.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×