Fótbolti

Sigur­mark Rodri og magnaðar mark­vörslur Eder­son

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Rodri skoraði markið sem tryggði Man City sigur í Meistaradeild Evrópu.
Rodri skoraði markið sem tryggði Man City sigur í Meistaradeild Evrópu. EPA-EFE/MARTIN DIVISEK

Manchester City vann Meistaradeild Evrópu í gær, laugardag, þökk sé marki Rodri í síðari hálfleik sem og nokkrum mögnuðum markvörslum frá Ederson. Markið sem og vörslurnar má sjá hér að neðan.

Leikurinn var frekar lokaður framan af þangað til Rodri skoraði með hnitmiðuðu skoti eftir fyrirgjöf Bernardo Silva sem hafði viðkomu í varnarmanni Inter.

Klippa: Sigurmark Meistaradeildar Evrópu

Inter gerði hvað það gat til að jafna en komst hvork lönd né strönd þar sem Ederson hreinlega neitaði að fá á sig mark. Brasilíski markvörðurinn var hreint út sagt magnaður og sýndi allar sínar bestu hliðar.

Klippa: Magnaðar markvörslur Ederson

Tengdar fréttir

Manchester City Evrópumeistari 2023

Manchester City er Evrópumeistari í fyrsta sinn eftir 1-0 sigur á Inter frá Mílanó í úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Man City varð þar með annað lið í sögu Englands til að vinna þrennuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×