Innlent

Segja ábyrgðina alfarið hjá BSRB

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Heiðar Björg Hilmisdóttir er formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Heiðar Björg Hilmisdóttir er formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Vísir/Arnar

Samband íslenskra sveitarfélaga segir BSRB alfarið um að kenna að verkfall sé skollið á. Tilboði um hækkun lægstu launa upp á 50-60 þúsund krónur hafi verið hafnað.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga í morgun. Fundi samninganefnda lauk á öðrum tímanum í nótt án niðurstöðu. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir að krafa félagsins um sömu laun fyrir sömu störf standi enn út af borðinu.

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga vísar allri ábyrgð á verkfallsaðgerðum á forystufólk BSRB. Samninganefnd sambandsins hafi ítrekað lagt fram ný tilboð sem forysta BSRB hafi hafnað. Það síðasta innihaldi í megin atriðum eftirfarandi:

  • 50.000 kr. til 60.000 kr. hækkun lægstu launa á mánuði frá 1. apríl 2023, sem nær til um helmings félagsmanna.
  • 55.700 kr. persónuuppbót þann 1. maí 2023.
  • 130.900 kr. persónuuppbót þann 1. desember 2023.

Sambandið hafi á undanförnum vikum skrifað undir kjarasamninga við fjölda stéttarfélaga. Meðal annars við ellefu aðildarfélög BHM, Eflingu, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Félag grunnskólakennara og Félag leikskólakennara.

Í tilkynningunni er lögð áhersla á að í janúar 20202 hafi Starfsgreinasambandið (SGS) skrifað undir kjarasamning við sambandið með gildistíma til 30. september og launatöflu 5 sem tryggði félagsfólki þeirra launahækkun þann 1. janúar 2023.

„Með því að hafna sama kjarasamningi og SGS samdi um hafnaði forysta BSRB launahækkun sem þeim stóð til boða og þar með jafnstöðu starfsfólks í sömu störfum á fyrstu þremur mánuðum ársins,“ segir í tilkynningunni.

Ljóst sé að tveir kjarasamningar sömu samningsaðila geti ekki verið í gildi á sama tíma, í þessu tilfelli fyrstu þrjá mánuði yfirstandandi árs.

„Þegar talað er um afturvirkni við kjarasamningagerð á það almennt við þegar að kjaraviðræður hafa staðið yfir í nokkurn tíma og verið er að tryggja að samningur taki við af samningi. Hins vegar er ekki um að ræða að nýr samningur geti verið afturvirkur inn á gildistíma þess samnings sem er liðinn og hefur verið að fullu efndur af hálfu sveitarfélaga.“

Sonja Ýr segir að nú færist mikill þungi í verkfallsaðgerðir.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×