Fótbolti

Glódís lék allan leikinn er Bayern styrkti stöðu sína á toppnum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir er algjör lykilmaður í liði Bayern München.
Glódís Perla Viggósdóttir er algjör lykilmaður í liði Bayern München. Xavi Bonilla/DeFodi Images via Getty Images

Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur hennar í Bayern München unnu mikilvægan 1-0 sigur er liðið tók á móti Hoffenheim í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Það var Lea Schuller sem kom heimakonum yfir á 26. mínútu eftir stoðsendingu frá Klara Buhl, en þrátt fyrir mikla yfirburði Bayern tóks liðinu ekki að bæta við mörkum og því urðu lokatölur 1-0.

Eins og áður segir lék Glódís Perla allan leikinn fyrir Bayern í kvöld, en Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var ónotaður varamaður.

Íslendingaliðið er nú með 55 stig á toppi þýsku deildarinnar eftir 20 leiki, fjórum stigum meira en Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur hennar í Wolfsburg sem sitja í öðru sæti og eiga einn leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×