Fótbolti

Fyrrum leikmaður Liverpool kynnir Eurovision-stig Eista

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Ragnar Klavan mun tilkynna stig eistnesku þjóðarinnar í Eurovision.
Ragnar Klavan mun tilkynna stig eistnesku þjóðarinnar í Eurovision. LFC Foundation/Liverpool FC via Getty Images

Ragnar Klavan, fyrrverandi leikmaður Liverpool, mun sjá um það verkefni að kynna stig Eistlands í Eurovision sem fram fer í Liverpool næstkomandi laugardagskvöld.

Eistneska ríkisútvarpið greinir frá því að þessi fyrrum fyrirliði eistneska karlalandsliðsins í fótbolta muni tilkynna hvernig eist­neska þjóðin kýs í Eurovisi­on á laug­ar­dag. Klavan mun því birtast á skjáum landsmanna í öðruvísi hlutverki en áður.

Klavan gekk í raðir Liverpool árið 2016 og lék með liðinu í tvö ár. Á tíma sínum í Bítlaborginni lék hann 39 deildarleiki fyrir liðið og skoraði í þeim eitt mark. Þrátt fyrir að hafa ekki endilega átt langan og farsælan feril hjá Liverpool var hann í miklum metum hjá stuðningsmönnum félagsins.

Klavan hefur einnig leikið með liðum á borð við AZ Alkmaar í Hollandi, Augsburg í Þýskalandi og Cagliari á Ítalíu. Þá á hann einnig að baki 129 leiki fyrir eistneska landsliðið og er þar með fimmti leikjahæsti leikmaður liðsins frá upphafi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×