Lífið

Sjáðu hvernig Diljá og keppinautum hennar gekk á rennsli

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Atriði Austurríkis, Íslands og Póllands eru um hituna í kvöld.
Atriði Austurríkis, Íslands og Póllands eru um hituna í kvöld.

Framlögin sextán sem keppa í seinni undankeppni Eurovision í kvöld voru öll flutt á búningarennsli síðdegis í Eurovision-höllinni í gær að viðstöddum blaðamönnum. Í myndskeiðunum hér fyrir neðan má sjá búta úr vel völdum atriðum, þar á meðal íslenska atriðið, sem Helena Rakel Jóhannesdóttir, framleiðandi Eurovísis tók upp.

Diljá var gríðarvel tekið á blaðamannarennslinu, eins og Eurovísir greindi frá í gær. Kliður fór um salinn eftir að Diljá lauk sér af; blaðamenn í grennd við undirritaða létu sérstaklega vel af kraftmikilli rödd okkar konu. Diljá var sjöunda á svið á æfingunni, á eftir Kýpur, eins og hún verður á undankeppninni í kvöld.

Það var einmitt á þessari æfingu sem snúningspallurinn byrjaði að láta ófriðlega, eins og Diljá sagði frá í fjórða þætti Eurovísis sem birtist í dag. Á dómararennslinu um kvöldið virkaði hann svo alls ekki en hann hrökk svo aftur í gang á æfingu í dag.

Á meðal atriða sem sjá má í myndskeiðinu hér fyrir neðan eru framlög Albaníu, Póllands, Austurríkis, Rúmeníu og Ástralíu.

Og hér fyrir neðan má sjá myndskeið frá flutningi Diljár.

Eurovísir hitti Diljá í Liverpool gærkvöldi og ræddi við hana um kvöldið í kvöld og það sem á undan er gengið.


Tengdar fréttir

Var vöruð við Ís­lendingum eftir að hún vann

Diljá Pétursdóttir fulltrúi Íslands í Eurovision er gríðarvel stemmd fyrir undankvöld keppninnar sem fram fer í Liverpool í kvöld. Hún segist ekkert hugsa út í veðbanka og hafi raunar ekki hugmynd um hvernig henni sé spáð. Þá hafi hún eingöngu fundið fyrir stuðningi frá Íslendingum þrátt fyrir viðvaranir um annað.

Snúnings­pallurinn klikkaði á ögur­stundu í kvöld

Tæknilegir örðugleikar gerðu vart við sig í framlagi Íslands á dómararennsli í Eurovision-höllinni í Liverpool í kvöld. Snúningspallur sem Diljá notar á sviðinu hætti að virka en verður kominn í lag fyrir stóru stundina annað kvöld, að sögn Diljár sjálfrar.

Varð að breyta förðuninni þegar hún sá nýja búninginn

„Þegar ég sá búninginn þá hugsaði ég að við þyrftum að gera eitthvað aðeins meira kúl,“ segir Lilja Dís Smáradóttir, sem sér um förðun og hár fyrir íslenska Eurovision-atriðið. Eins og sjá má af myndum frá æfingum Diljár hefur búningur hennar tekið talsverðum breytingum frá því sem var í Söngvakeppninni heima.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×