Handbolti

„Ég átti ekki von á þessu svona“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eyjakonur fagna marki í einvíginu á móti Haukum. Elísa Elíasdóttir var mjög góð í oddaleiknum og skoraði þá fimm mörk.
Eyjakonur fagna marki í einvíginu á móti Haukum. Elísa Elíasdóttir var mjög góð í oddaleiknum og skoraði þá fimm mörk. Vísir/Hulda Margrét

Sigurður Bragason er búinn að koma Eyjakonum í úrslitaeinvígið í Olís deild kvenna og einu skrefi nær því að vinna þrennuna á þessu tímabili.

ÍBV hefur þegar unnið deildarmeistaratitilinn og bikarmeistaratitilinn og nú er stefnan sett á fyrsta Íslandsmeistaratitil félagsins í sautján ár.

ÍBV mætir Val í úrslitaeinvíginu sem hefst í Eyjum á morgun en Eyjaliðið vann Hauka í framlengdum oddaleik á þriðjudagskvöldið.

Svava Kristín Gretarsdóttir og Seinni bylgjan voru í Vestmannaeyjum og hún og Sigurlaug Rúnarsdóttir ræddu við Sigurð í leikslok.

Sigurður Bragason hvetur sínar stelpur áfram.Vísir/Hulda Margrét

Í sjokki eins og eftir góða leiksýningu

„Ég hef alveg verið stressaðri og ætla nú alveg að viðurkenna það. Maður er í sjokki eins og eftir einhverja góða leiksýningu eða eitthvað. Ég er góður og mér líður vel,“ sagði Sigurður Bragason.

„Þessu var alveg lænað upp í eitthvað væl, Sunna sprungin, Elísa búin og eitthvað svoleiðis. Góður karakter hjá stelpunum í framlengingunni. Það þarf engan sérfræðing til að sjá það að við erum að spila á fáum leikmönnum. Þvílík orka sem þær gefa í þetta allan tímann. Þetta var bara stál í stál,“ sagði Sigurður.

„Ég sagði bara við þær fyrir framlenginguna, njótum þess núna og við erum ekki að fara tapa framlengingunni og ekki þá hér. Haukarnir voru bara betri en við í báðum framlengingunum út í Haukaheimili. Við áttum ekkert skilið þar en ég var rosalega ánægður með framlenginguna. Marta kemur sterk inn í markinu og varnarleikurinn var stórkostlegur. Við vorum helvíti flottar fannst mér í framlengingunni, kúl á því og ég var bara hrikalega ánægður með þær,“ sagði Sigurður.

Haukar veittu bikar- og deildarmeisturunum mjög mikla mótstöðu í þessu einvígi en þrír af fimm leikjum voru framlengdir. Voru Haukarnir betri en hann bjóst við?

Allt önnur orka í þeim

„Engin spurning. Ég ætla bara að segja það að ég átti ekki von á þessu svona. Þær eru búnar að vera frábærar og ég er búinn að hrósa Díönu með þetta. Það kemur eitthvað allt annað element inn í þetta. Ég ætla ekki að gera lítið úr honum Ragnari, toppmaður og allt það, en það er allt önnur orka í þeim. Mér finnst þær léttari og með meiri sprengju,“ sagði Sigurður og hrósaði einstökum leikmönnum Hauka.

Sigurlaug Rúnarsdóttir fannst vera breyttur bragur á ÍBV í úrslitakeppninni miðað við það hvernig liðið spilaði í deildinni og spurði hvort það væri áhyggjuefni.

Fórum helvíti lélegar inn í þessar úrslitakeppni

„Ég skil alveg hvað þú ert að meina og ég er bara sammála því. Þetta er svolítið þungt. Við verðum deildarmeistarar í byrjun apríl, þá verður þetta landsleikjastopp og við æfum ekkert. Síðan lendum við í þessum leik, sem var bara glataður og við töpuðum með níu mörkum. Við fórum helvíti lélegar inn í þessar úrslitakeppni,“ sagði Sigurður.

„Við erum að reyna að vinna okkur aftur inn í þennan léttleika og þetta sem stóðum fyrir. Varnarlega erum við þar en ekki sóknarlega. Auðvitað munar okkur um Birnu í þessum síðustu tveimur leikjum. Ef við ætlum að eiga séns í Val þá þurfum við að rífa upp þennan sóknarleik aftur. Við höfum þrjá, fjóra daga í það og reynum hvað við getum,“ sagði Sigurður.

Það má horfa á allt viðtalið hér fyrir neðan.

Klippa: Seinni bylgjan: Viðtal við Sigurð Bragason eftir oddaleikinn



Fleiri fréttir

Sjá meira


×