Fótbolti

Stór­kost­legar fréttir fyrir AC Milan rétt fyrir stór­leik kvöldsins

Sindri Sverrisson skrifar
Hinn öskufljóti Rafael Leao hefur skorað rúman tug marka í ítölsku A-deildinni tvö tímabil í röð.
Hinn öskufljóti Rafael Leao hefur skorað rúman tug marka í ítölsku A-deildinni tvö tímabil í röð. Getty/Fabrizio Carabelli

Erkifjendurnir í AC Milan og Inter mætast í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld en stuðningsmenn AC Milan hafa ástæðu til að gleðjast þó að leikurinn sé ekki hafinn.

Portúgalski sóknarmaðurinn Rafael Leao, sem slegið hefur algjörlega í gegn síðustu misseri, hefur skrifað undir nýjan samning við Milan sem gildir til ársins 2028. Frá þessu greinir hinn virti miðill The Athletic í dag.

Leikur Mílanó-liðanna hefst klukkan 19 og ríkt hefur óvissa um þátttöku Leao í leiknum í kvöld vegna meiðsla. Hann æfði í gær og ætti í það minnsta að vera klár í slaginn á þriðjudaginn í næstu viku þegar seinni leikur liðanna fer fram.

Leao, sem er 23 ára gamall, kom til AC Milan frá Lille í Frakklandi sumarið 2018. Hann hefur átt stóran þátt í að koma liðinu í undanúrslitin í Meistaradeildinni og var einnig í lykilhlutverki þegar Milan varð ítalskur meistari í fyrra, í fyrsta sinn í rúman áratug. 

Fyrri samningur Leao við Milan átti að renna út í júní á næsta ári en nú er ljóst að stórliðin sem hafa haft hann í sigti sínu þurfa að bíða eða greiða enn meira en ella ætli þau sér að reyna að fá leikmanninn.

Leikur AC Milan og Inter er í beinni ústendingu á Stöð 2 Sport 2 og hefst klukkan 19 í kvöld.


Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×