Lífið

Bretar sannfærðir um að Diljá fljúgi áfram

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Ben og Lilliana voru mætt sérstaklega til Liverpool til að drekka í sig Eurovision-stemninguna þegar Eurovísir hitti þau.
Ben og Lilliana voru mætt sérstaklega til Liverpool til að drekka í sig Eurovision-stemninguna þegar Eurovísir hitti þau.

Bretar sem Eurovísir hitti á förnum vegi í Liverpool, þar sem Eurovision fer nú fram, eru flestir á því að Diljá, fulltrúi okkar Íslendinga í keppninni, komist áfram í úrslit keppninnar.

Fyrst kynnum við til leiks Ben og Lilliönu. Þau segjast gríðarlegir Eurovision-aðdáendur og langt er síðan þau gerðu með sér samkomulag um að mæta á Eurovision ef það yrði einhvern tímann haldið í Bretlandi. Þau eru sammála um uppáhaldslögin; Finnland, Svíþjóð, Noregur og Austurríki. En hvað með íslenska framlagið?

„Mér finnst það mjög vanmetið. Dansinn, orkan. Ég elska það,“ segir Ben. „Ég held að það komist áfram,“ segir Lilliana. „Ég vona það,“ bætir Ben við.

Susie er annar breskur Eurovision-aðdáandi sem Eurovísir tók tali í Liverpool. Hún var í mikilli Eurovision-múnderingu; kjól sérmerktum framlögum Austurríkis, Finnlands og Þýskalands.

„Það er algjörlega frábært,“ segir Susie um íslenska lagið. „Frábært lag. Ég hef verið mikill aðdáandi Íslands í Eurovision síðan Daði Freyr tók þátt. Þið eruð alveg með á hreinu hvernig á að taka þátt í Eurovision.“

Ben, Lilliana, Susie og fleiri Eurovision-glaðir Bretar eru viðmælendur í öðrum þætti Eurovísis sem horfa má á hér fyrir neðan. Í þættinum fylgjumst við einnig með ferðalagi Eurovísis til Liverpool, sem tók á móti okkur með sannkallaðri, breskri úrhellisrigningu.

Diljá stígur á svið hér í Liverpool á seinna undanúrslitakvöldinu á fimmtudag. Hún situr, eins og síðustu daga, í 29. sæti á Eurovisionworld og er því ekki spáð áfram í úrslitakeppnina á laugardag. En ef Bretarnir okkar reynast sannspáir verður hún ekki í vandræðum með að næla sér í sæti á úrslitunum. Við spyrjum að leikslokum!

Eurovísir er þáttur um Eurovision - á Vísi! Við kryfjum keppnina, komandi og liðnar, og eltum okkar fólk út til Liverpool.


Tengdar fréttir

Ekki endi­lega viss um að síma­kosningin fari vel með Lor­een

Eurovision-sérfræðingur segir sænskan sigur í Eurovision í ár alls ekki meitlaðan í stein; Finnar gætu vel hreppt hnossið ef dómnefndir verða þeim hliðhollar. Nú þegar stóra stundin nálgast óðfluga gæti hagur Íslands jafnframt vænkast í veðbönkum en hann hefur þó ekki trú á að framlagið hafni ofar en í 15. sæti.

Ekki talið öruggt fyrir hana að vera á al­manna­færi

Ágústa Eva Erlendsdóttir söng- og leikkona, sem fór fyrir Íslands hönd í Eurovision í gervi Silvíu Nætur árið 2006, lýsir algjöru fjölmiðlafári kringum atriðið á sínum tíma. Skapofsi Silvíu Nætur kom henni ítrekað í klandur, bæði gagnvart skipuleggjendum Eurovision og grísku þjóðinni. Skömmu eftir keppnina var henni beinlínis ráðið frá því að vera á almannafæri, slík var heiftin úti í Grikklandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×