Fótbolti

Þjálfari Bayern segir lið sitt þurfa krafta­verk

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Thomas Tuchel tók við Julian Nagelsmann sem þjálfari Bayern fyrir ekki svo löngu síðan.
Thomas Tuchel tók við Julian Nagelsmann sem þjálfari Bayern fyrir ekki svo löngu síðan. Christina Pahnke/Getty Images

Thomas Tuchel, tiltölulega nýráðinn þjálfari Þýskalandsmeistara Bayern München, segir sína menn þurfa kraftaverk í síðari leik liðsins gegn Manchester City í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Man City vann fyrri leikinn á Etihad-vellinum í Manchester 3-0 og er komið með annan fótinn í undanúrslit keppninnar. Þó Pep Guardiola segir að Bayern sé til alls líklegt og að atvikið milli Sadio Mané og Leroy Sané eftir leik geti í raun hjálpað Bæjurum þá er Tuchel ekki á sama máli.

„Við þurfum kraftaverk,“ sagði Tuchel um leik kvöldsins sem verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2.

„Ég veit ekki hvort það er viðeigandi að tala um 4-0 eða 5-1 sigur, við þurfum að vera raunsæir en að sjálfsögðu höfum við trú á eigin getu. Ef við eigum góðan fyrri hálfleik er allt mögulegt.“

„Þetta er risastórt fjall sem við þurfum að klífa og það er þess vegna sem við þurfum að hafa trú á eigin getu en við getum ekki látið okkur dreyma. Draumar fyrir mér eru tengdir svefni og við getum ekki sofið í eina sekúndu.“

Við verðum að trúa og að trúa þýðir að við þurfum að láta hlutina gerast. Við þurfum að spila sem lið, spila vel og spila af mikilli ákefð. Við erum ekki eini í þessu og stuðningsfólk okkar mun styðja dyggilega við bakið á okkur.“

Sadio Mané verður í hóp Bayern í kvöld þó svo að hann hafi slegið Sané í andlitið með þeim afleiðingum að vör hans stokkbólgnaði eftir fyrri leikinn. Hvort Mané byrji er annað mál en Tuchel er þó ekki viss um að málið muni gefa Bayern byr í seglin.

„Ég vonaðist til þess gegn Hoffenheim en það gerði það augljóslega ekki,“ sagði þjálfarinn að endingu en Bayern gerði 1-1 jafntefli um helgina. Liðið hefur átt erfitt uppdráttar síðan Tuchel tók við og á afar erfitt verkefni fyrir höndum í kvöld.

Leikur Bayern og Man City verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2 klukkan 19.00. 


Tengdar fréttir

Segir Bayern hafa sektað Mané um 45 milljónir

Bayern München ku hafa sektað framherjann Sadio Mané um rúmar 45 milljónir íslenskra króna fyrir að hafa slegið Leroy Sané í andlitið eftir tapið gegn Manchester City í Meistaradeild Evrópu. Þá er talið að Thomas Tuchel vilji losna við Mané.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×