Evrópumeistararnir í undanúrslit

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Rodrygo skoraði bæði mörk Real Madrid í kvöld.
Rodrygo skoraði bæði mörk Real Madrid í kvöld. James Williamson - AMA/Getty Images

Evrópumeistarar Real Madrid eru komnir í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir góðan 2-0 útisigur gegn Chelsea í kvöld.

Madrídingar höfðu tveggja marka forskot eftir fyrri leik liðanna og því var ljóst að Chelsea átti erfitt verkefni fyrir höndum. Heimamenn í Chelsea sköpuðu sér þó nokkur álitleg færi í fyrri hálfleik, en inn vildi boltinn ekki og staðan var því enn markalaus þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja.

Gestirnir fóru svo langleiðina með að gera út um einvígið þegar Rodrygo kom Madrídingum yfir með marki á 58. mínútu eftir stoðsendingu frá Vinicius Junior.

Rodrygo var svo aftur á ferðinni tíu mínútum fyrir leikslok þegar hann skoraði annað mark Madrídinga og gerði þar með endanlega út um vonir Lundúnaliðsins. Niðurstaðan varð því 2-0 sigur Real Madrid og samanlagt 4-0 í einvíginu.

Real Madrid er því á leið í undanúrslit þar sem liðið mætir annað hvort Manchester City eða Bayern München, en City leiðir það einvígi 3-0.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira