Innlent

Úðuðu piparúða yfir saklausa gesti

Árni Sæberg skrifar
Drengirnir voru á rafskútu þegar þeir úðuðu piparúða yfir fólk sem beið eftir því að komast inn í hlýjuna á ótilgreindum skemmtistað.
Drengirnir voru á rafskútu þegar þeir úðuðu piparúða yfir fólk sem beið eftir því að komast inn í hlýjuna á ótilgreindum skemmtistað. Vísir/Aníta

Talsverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Meðal þeirra sem bökuðu vandræði í nótt voru tveir drengir sem hjóluðu um á rafmagnshlaupahjóli og úðuðu piparúða á fólk sem beið í röð til þess að komast inn á skemmtistað í miðborginni.

Í dagbók lögreglu fyrir tímabilið segir að drengirnir hafi tvímennt á eitt rafmagnshlaupahjól og að þeir hafi komist undan en lögregla síðar haft hendur í hári þeirra. Málið sé nú til rannsóknar hjá lögreglu og komið á borð barnaverndar, enda séu drengirnir báðir undir lögaldri. 

Þá segir að einhverjir þeir sem vonuðust til þess að fá inngöngu að skemmtistaðnum sem um ræðir hafi þurft aðhlynningu eftir piparúðaárásina.

Af öðrum verkefnum lögregluþjóna á stöð 1 við Hverfisgötu ber hæst að lögregluþjónar vísuðu manni út af heilbrigðisstofnun að ósk starfsfólks hennar. Sá hafði viðhaft ógnandi tilburði gagnvart starfsfólki.

Þá leitar lögregla nú fingralangs manns sem braust inn í skartgripaverslun og hafði á brott með sér talsvert magn skartgripa.

Veittist að manni með exi

Lögreglunni á stöð 2, sem þjónustar Garðabæ og Hafnarfjörð, barst tilkynning um mann sem hafði veist að öðrum með exi. Hinn grunaði gaf sig fram og gistir nú fangageymslur lögreglu.

Þá óskuðu dyraverðir á veitingahúsi eftir aðstoð lögreglu vegna manns sem lét öllum illum látum og óskuðu eftir því að hann yrði fjarlægður af svæðinu. Í dagbókinni segir að maðurinn hafi verið „víðáttuölvaður“ og að hann hafi neitað að gefa upp nafn og kennitölu. Þá hafi lögregluþjónar reynt að fá manninn til þess að gefa upp heimilisfang, til þess að unnt væri að aka honum heim, en hann hafi einnig neitað að gefa það upp.

„Ekki var hægt að skilja við manninn í þessu ástandi sökum ölvunar og var hann því vistaður í fangaklefa,“ segir í dagbókinni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×