Fótbolti

Reynslumikill fyrrverandi þjálfari Danmerkur og Noregs á óskalista KSÍ

Jón Már Ferro skrifar
Age Hareide er reynslumikill norskur þjálfari. Hér fagnar hann því að hafa komið Danmörku á EM 2021.
Age Hareide er reynslumikill norskur þjálfari. Hér fagnar hann því að hafa komið Danmörku á EM 2021. Getty/Lars Ronbog

KSÍ hefur sett sig í samband við, hinn norska þjálfara, Age Hareide um að taka við karlalandsliði Íslands.

Þetta herma heimildir Fótbolta.net. Arnar Þór Viðarson var rekinn úr starfi landsliðsþjálfara á dögunum og leitar KSÍ því að nýjum þjálfara. KSÍ hefur gefið út að leitað sé að reynslumiklum þjálfara. 

Hareide passar sannarlega inn í þá skilgreiningu enda verið þjálfari í tæp fjörutíu ár og þekkir það vel að þjálfa landslið. Hann þjálfaði Noreg 2003-2008 og Danmörku 2016-2020. Hann kom Dönum á HM 2018 og EM 2021.

Hareide hóf þjálfaraferil sinn fyrir 37 árum þegar hann tók við Molde sem spilandi aðstoðarþjálfari. Í framhaldinu tók hann við sem aðalþjálfari félagsins. Hann hefur þjálfað fleiri félög á Norðurlöndunum. Síðast var hann þjálfari Malmö FF í sænsku úrvalsdeildinni en lét af störfum í desember 2022.

Sem þjálfari hefur hann unnið dönsku úrvalsdeildina einu sinni, sænsku úrvalsdeildina tvisvar og norsku úrvalsdeildina einu sinni. Einnig hefur hann unnið sænska bikarinn einu sinni og norska bikarinn tvisvar.

Næstu leikir landsliðsins eru í undankeppni EM 2024 í júní. Á þjóðhátíðardaginn koma Slóvakar í heimsókn og þremur dögum seinna mæta Cristiano Ronaldo og félagar í portúgalska landsliðinu á Laugardalsvöll. Ísland er með þrjú stig eftir fyrstu tvo leikina á móti Bosníu og Liechtenstein.


Tengdar fréttir

Hver á að taka við landsliðinu?

Stjórn KSÍ stendur nú frammi fyrir því verkefni að ráða nýjan þjálfara fyrir karlalandsliðið í fótbolta eftir að Arnar Þór Viðarsson var rekinn í dag. En hvaða þjálfarar koma til greina?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×