Sport

Birnir bætti átta ára gamalt Íslandsmet og Snæfríður jafnaði met morgunsins

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Hinn 16 ára gamli Birnir Freyr Hálfdánarson gerði sér lítið fyrir og sló átta ára gamalt Íslandsmet Antons Sveins McKee.
Hinn 16 ára gamli Birnir Freyr Hálfdánarson gerði sér lítið fyrir og sló átta ára gamalt Íslandsmet Antons Sveins McKee. Sundsamband Íslands

Hinn 16 ára gamli Birnir Freyr Hálfdánarson úr SH synti í dag 200m fjórsund á tímanum 2:04,05 og bætti þar með átta ára gamalt Íslandsmet Antons Sveins McKee. Þá jafnaði Snæfríður Sól Jórunnardóttir sitt eigið met í 100m skriðsundi.

Anton setti gamla metið árið 2015 þegar hann synti á tímanum 2:04,53 og Birnir bætti því metið um tæplega hálfa sekúndu.

Þá jafnaði Snæfríður Sól Jórunnardóttir Íslandsmet sitt í 100m skriðsundi frá því í morgun í úrslitum Danish Open. Snæfríður synti á 55,18 sekúndum sem er nákvæmlega sami tími og í morgun.

Snæfríður bætti fyrra met sitt í morgun sem hún hafði sett tæpum mánuði áður. Gamla metið var 55,61 sekúnda og Snæfríður bætti sig því um 0,43 sekúndur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×