Tónlist

„Maður er eins og guð í smá stund“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Elín Hall er tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum.
Elín Hall er tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum. Skjáskot/Vísir

Tónlistarkonan og leikkonan Elín Hall skaust fyrst fram á sjónarsviðið árið 2015 þegar hún tók þátt í Söngvakeppninni aðeins sextán ára gömul. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá hjá Elínu, sem leikur meðal annars í sýningunni Níu líf í Borgarleikhúsinu og hefur gefið út sóló plötu. Elín Hall er tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum.

Nú styttist óðum í Hlustendaverðlaunin 2023 sem fara fram 17. mars næstkomandi. Nýliði ársins er meðal verðlaunaflokka og eru átta hljómsveitir og tónlistarmenn sem keppast um titilinn. Dóra Júlía hitti allt tónlistarfólkið sem var tilnefnt í þessum flokki og fékk smá innsýn inn í sköpunargleði þeirra og tónlist.

Viðtalið má sjá í spilaranum hér að neðan:

Klippa: Nýliðinn: Elín Hall

Hver ert þú með eigin orðum?

Ég er bara nett ofvirk skvísa með mikið hugmyndaflug.

Hvernig myndir þú lýsa þínum tónlistarstíl?

Ég myndi eiginlega bara segja að fyrir mér sé tónlistin mín frásagnartæki. Litlar sögur eða tilfinningar sem mig langar til að miðla í gegnum tónlistarformið.

Hver var kveikjan að því að þú byrjaðir í tónlist?

Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á tónlist og sérstaklega því að semja. Það má samt segja að upphafið hafi verið þegar ég sendi inn lag í Söngvakeppni Sjónvarpsins. 

Ég var bara 16 ára og stökk beint í djúpu laugina en ég hef unnið sem listamaður meira og minna síðan.

Hvað er það skemmtilegasta við að vinna í tónlist?

Mér finnst það vera töfrarnir við að fara frá því að hafa ekkert í höndunum yfir í að finnast maður hafa búið til fjársjóð. 

Maður er eins og guð í smá stund. 

Svo er það líka fólkið sem maður fær að vinna með og deila sköpuninni með.

En erfiðasta?

Fyrir þá týpu af tónlist sem ég er að gera þá myndi ég segja að berskjöldunin sé það sem er mest krefjandi.

Er eitthvað við tónlistarbransann sem hefur komið þér á óvart?

Hvað allir eru saman í liði.

Drauma samstarfs aðili?

Ef maður má dreyma stórt væri ég aldrei söm bara við það eitt að fá að fylgjast með Taylor Swift í hljóðverinu.

Áttu þér einhverja íslenska fyrirmynd í tónlistarheiminum?

Bubbi Morthens.

Hvernig var tilfinningin að fá tilnefningu sem Nýliði ársins?

Mér finnst það mikill heiður. Þrátt fyrir að finnast ég ekki vera ný í senunni þá er ég ótrúlega þakklát fyrir viðurkenninguna.

Tengdar fréttir

„Maður átti helst ekkert að tala um aldurinn sinn“

Tónlistarkonan og leikkonan Silja Rós er að eigin sögn orkumikil tilfinningavera sem lifir fyrir að skapa list. Það kom snemma í ljós hvert stefndi þar sem hún var syngjandi allan daginn sem barn og henni líður hvergi betur en á sviðinu. Silja Rós er tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum.

„Algjör draumur að geta unnið við það sem ég elska“

Tónlistarkonan Una Torfadóttir ber marga hatta og segist fyrst og fremst vera stemningskona. Hún hefur verið í kringum tónlist allt sitt líf og segir algjöran draum að geta nú unnið við það sem hún elskar. Una Torfa er tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum.

„Það er ekkert plan B“

Rapparinn Daniil skaust upp á stjörnuhimininn í fyrra en hann byrjaði í tónlist eftir að vinur hans fékk Macbook tölvu þegar þeir voru yngri. Honum finnst allt skemmtilegt við tónlistarbransann og stefnir bara lengra. Daniil er tilnefndur sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum.

„Ekkert erfitt við tónlist nema að fá pening fyrir hana“

Hljómsveitin Kvikindi samanstendur af Brynhildi Karlsdóttur, Friðriki Margrétar-Guðmundssyni og Valgeiri Skorra Vernharðssyni. Með tónlist sinni leggja þau upp úr því að koma fólki til að dansa í gegnum tárin, finna stelpulegu hliðina og elska meira en tónlistin hefur alltaf verið hluti af þeirra lífi. Kvikindi eru tilnefnd sem Nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×