Innlent

Sól­veig Anna greiðir atkvæði með miðlunar­til­lögunni: „Verð ef­laust grilluð á teini mjög hratt og rösk­lega“

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar á von á því að margir verði ósáttir við það að hún ætli sér að greiða með nýrri miðlunartillögu sem settur sáttasemjari, Ástráður Haraldsson, lagði fram í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins.
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar á von á því að margir verði ósáttir við það að hún ætli sér að greiða með nýrri miðlunartillögu sem settur sáttasemjari, Ástráður Haraldsson, lagði fram í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Vísir/Vilhelm

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hyggst greiða atkvæði með nýrri miðlunartillögu Ástráðar Haraldssonar, setts sáttasemjara. Hún segist búast við því að verða „grilluð á teini mjög hratt og rösklega“ vegna þess, en telur ekkert annað hafa verið í stöðunni.

Atkvæðagreiðsla um miðlunartillöguna hófst á fimmtudag og lýkur næstkomandi miðvikudag. Verði miðlunartillagan samþykkt fá félagar í Eflingu sömu launahækkanir og í kjarasamningum annarra félaga Starfsgreinasambandsins sem náðust við SA í byrjun desembermánaðar. Launahækkanirnar verða afturvirkar frá 1. nóvember 2022.

Sólveig Anna, formaður Eflingar, greindi frá því í viðtali á Samstöðinni í gær að hún ætlaði sér að greiða með miðlunartillögunni.

Meðvituð um að „fullt af fólki verði alveg brjálað“

Hún sagðist meðvituð um að „fullt af fólki verði alveg brjálað.“ Það sé þó ekkert annað í stöðunni en þetta. „Ég vil að bílstjórarnir fái það sem að þeir munu fá og að það fari nú í gegn,“ sagði Sólveig.

„Ég verð eflaust grilluð á teini mjög hratt og rösklega,“ sagði Sólveig. Aðspurð um hver ætti að gera það sagði hún að það væri fólkið sem vildi ekki að hún segði þetta.

„En kannski slepp ég við grillunina. Kannski finnst fólki að það sé búið að grilla mig nógu lengi.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×