Fótbolti

Neymar missir af seinni leiknum á móti Bayern

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Neymar meiddist illa á ökkla í leik með Paris Saint-Germain. Hann var sárþjáður.
Neymar meiddist illa á ökkla í leik með Paris Saint-Germain. Hann var sárþjáður. Getty/Tim Clayton

Paris Saint-Germain þarf að sætta sig við það að spila án Brasilíumannsins Neymar í leiknum mikilvæga á móti Bayern München í Meistaradeildinni.

Christophe Galtier, knattspyrnustjóri PSG, svo gott sem staðfesti það í dag að Neymar verði ekki með í seinni leik liðanna í sextán liða úrslitunum.

Neymar var borinn af velli eftir að hafa meiðst illa á ökkla í 4-3 sigri PSG á Lille í síðasta mánuði.

Myndataka sýndi að hann hafði teygt á liðböndum og endurhæfing myndi taka tvær til þrjár vikur.

Galtier var spurður út í það á blaðamannafundi hvort að Neymar myndi ná þessum úrslitaleik.

„Nei ég held að hann verði ekki með á móti Bayern,“ svaraði Christophe Galtie.

Bayern vann fyrri leikinn 1-0 á móti PSG en hann fór fram í Frakklandi.

Neymar fór sjálfur í mikla og stranga meðferð með það markmið að ná þessum leik við Bayern en nú lítur út fyrir að það hafi ekki dugað til.

Neymar hefur skorað 18 mörk og gefið 17 stoðsendingar í 29 leikjum í öllum keppnum með á leiktíðinni þar af eru 2 mörk og 3 stoðsendingar í Meistaradeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×