Sport

Katrín Tanja sótti um banda­rískan ríkis­borgara­rétt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Katrín Tanja hefur komið sér vel fyrir í Idaho fylki en það er í norðvesturhluta Bandaríkjanna.
Katrín Tanja hefur komið sér vel fyrir í Idaho fylki en það er í norðvesturhluta Bandaríkjanna. Instagram/@katrintanja

Íslenska CrossFit konan Katrín Tanja Davíðsdóttir er flutt til Bandaríkjanna og hefur komið sér vel fyrir með kærastanum í Idaho fylki. Hún vill nú fá bandarískt ríkisfang.

Katrín Tanja útskýrði stöðu sína á Instagram.Instagram/@katrintanja

Katrín Tanja útskýrði stöðuna á sér á samfélagsmiðlunum Instagram. Katrín ákvað að gera það eftir að hafa fengið það samþykkt að keppa í undankeppni heimsleikanna í Norður-Ameríku hlutanum og sleppa við að fara í gegnum undankeppni Evrópu.

Katrín fékk leyfi hjá CrossFit samtökunum fyrir því að sleppa við að fljúga til Evrópu til að keppa í undanúrslitunum en keppa í öðrum af tveimur undanúrslitunum sem fara fram í Norður-Ameríku.

Þegar Katrín útskýrði stöðu mála þá kom einnig fram hjá henni að hún hefur nú sótt um bandarískan ríkisborgararétt.

Katrín hefur búið í Bandaríkjunum undanfarin fimm ár fyrir utan að hún kom heim til Íslands í sex mánuði á síðasta ári. Katrín flutti síðan endanlega til kærasta síns, Brooks Laich, í Coeur d'Alene í Idaho fylki.'

Áður hafði hún búið lengi í nágrenni Boston þar sem hún æfði hjá þáverandi þjálfara sínum Ben Bergeron. Eftir að hún hætti hjá honum snéri Katrín Tanja heim og fór að æfa hjá þjálfara Anníe Mistar, Jami Tikkanen.

Nú er orðið ljóst að Katrín Tanja sér framtíð sína fyrir sér í Bandaríkjunum og skiljanlega er meira vit í því að fara þá í gegnum undankeppni Norður-Ameríku í stað þess að þurfa að leggja í löng ferðalög á undanúrslitamót í Evrópu.

Katrín sagði það góða sönnun um staðfestu sína að búa í Bandaríkjunum að hún hafi tekið litla hvolpinn sinn til Idaho. Hann má nefnilega ekki koma aftur til Íslands.

Katrín er náttúrulega tvöfaldur heimsmeistari og einhverjir sjá fyrir sér að hún sé að taka sæti af bandarísku stelpunum en eins og hún sýndi í færslu sinni þá snýst þetta um þá staðreynd að hún býr nú í Bandaríkjunum en ekki í Evrópu.

Katrín Tanja afsalar sér væntanlega ekki íslenska ríkisborgararéttinum í leiðinni og við höldum auðvitað áfram að líta á hana sem eina af íslensku CrossFit konunum sem eru að gera góða hluti í alþjóðlegum mótum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×