Innlent

Þrír fluttir með sjúkra­flugi til Reykjavíkur eftir á­rekstur á Hóla­vegi

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Farþegar bifreiðanna voru fluttir með sjúkraflugi til Reykjavíkur.
Farþegar bifreiðanna voru fluttir með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm

Tveir bílar skullu saman á Hólavegi í Hjaltadal upp úr klukkan fjögur í dag. Mikil hálka var á svæðinu. Þrír aðilar voru í bílunum og voru þeir fluttir með sjúkraflugi til Reykjavíkur. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi Vestra. 

Upplýsingar um meiðsl fólksins liggja ekki fyrir en voru þau ekki talin lífshættuleg.

Hólavegi var lokað vegna rannsóknar á vettvangi en er í þann mund að opna. 

Tilkynningu embættisins má sjá hér að neðan. 

Tilkynning lögreglunnar á Norðurlandi vestra

Umferðarslys varð upp úr kl.16.00 í dag á Hólavegi í Hjaltadal. Þar skullu saman tvær bifreiðar sem að komu úr gagnstæðum áttum. Aðstæður á vettvangi voru ekki góðar, snjór og hálka. Töluverður viðbúnaður var vegna slyssins en í annarri bifreiðinni voru tveir aðilar en einn í hinni bifreiðinni. Hólavegur hefur verið lokaður vegna rannsóknar á vettvangi en er við það að opnast. Aðilarnir í slysinu voru fluttir með sjúkrabifreiðum á Sauðárkrók og þaðan með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Ekki er vitað nákvæmlega með meiðsl fólksins en þau eru samt sem áður ekki talin lífshættuleg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×